Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
24. júní 2026
Útgáfudagur
9. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 785/2026
24. júní 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
5.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1157 frá 22. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 5.4.
6.3 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1164 frá 22. maí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 6.3.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 24. júní 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild — Útgáfudagur: 9. júlí 2026
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1157
frá 22. maí 2026
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir
í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn
Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar
í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 20. júlí 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 (1).
2) Hinn 14. maí 2024 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2024/1336 (2) sem breytti ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 og víkkaði út gildissvið þvingunaraðgerðanna þannig að það næði yfir aðila sem láta í té, selja eða koma á annan hátt að tilflutningi á ómönnuðum loftförum eða flugskeytum, sem framleidd eru í Íran, eða tengdri tækni, til vopnaðra hópa og rekstrareininga sem grafa undan friði og öryggi í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, eða til aðila, rekstrareininga eða stofnana sem brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015).
3) Hinn 11. mars 2026 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2817 (2026) sem staðfesti fulla skuldbindingu sína til að stuðla að viðhaldi friðar og stöðugleika í Austurlöndum nær. Það fordæmdi einnig allar aðgerðir eða ógnanir af hálfu Íslamska lýðveldisins Írans sem miða að því að loka, hindra eða á annan hátt raska alþjóðlegum siglingum um Hormússund eða ógna öryggi siglinga um Bab Al Mandab-sund. Það staðfesti einnig að allar tilraunir til að hindra löglega gegnumferð eða frelsi til siglinga á þessum alþjóðlegu siglingaleiðum væri alvarleg ógn við frið og öryggi á alþjóðavettvangi og hvatti Íran til að láta tafarlaust af hvers kyns aðgerðum eða ógnunum í samræmi við alþjóðalög.
4) Hinn 1. mars 2026 gaf æðsti fulltrúi Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum út yfirlýsingu fyrir hönd Sambandsins um gang mála í Austurlöndum nær. Í yfirlýsingunni var tekið fram að atburðirnir í Íran mættu ekki leiða til stigmögnunar sem gæti ógnað Austurlöndum nær, Evrópu og öðrum heimshlutum, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, þ.á m. á vettvangi efnahagsmála. Í yfirlýsingunni var staðfest að forðast verði röskun á mikilvægum siglingaleiðum, s.s. um Hormússund.
5) Í niðurstöðum sínum frá 19. mars 2026 kallaði leiðtogaráðið eftir því að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2817 (2026) kæmi að fullu til framkvæmda, minnti á nauðsyn þess að tryggja siglingavernd og að frelsi til siglinga væri virt og fordæmdi hvers konar aðgerðir sem ógna siglingum eða koma í veg fyrir að skip sigli um Hormússund.
6) Hinn 9. apríl 2026 gaf æðsti fulltrúi Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum út yfirlýsingu fyrir hönd Sambandsins um vopnahléi sem samið var um milli Bandaríkjanna og Írans og hvatti alla hlutaðeigandi aðila til að tryggja frelsi til siglinga sem og frjálsa og örugga för um Hormússund, í samræmi við alþjóðalög, eins og þau birtast í hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna.
7) Aðgerðir Írans gegn kaupskipum og skipum sem notuð eru í atvinnuskyni, sem sigla um Hormússund, svo og álagning gjalds í skiptum fyrir heimild til gegnumferðar, eru hvorki í samræmi við réttinn til gegnumferðar um alþjóðlegt sund sem tengir einn hluta úthafanna eða sérefnahagslögsögu og annan hluta úthafanna eða sérefnahagslögsögu, né réttinn til friðsamlegrar ferðar og brjóta því í bága við alþjóðalög.
8) Í ljósi alvarleika ástandsins og til að bregðast við aðgerðum Írans sem grafa undan frelsinu til siglinga, þ.m.t. réttinum til gegnumferðar og til friðsamlegrar ferðar, í Austurlöndum nær, þykir rétt að setja fram frekari þvingunaraðgerðir að því er varðar Íran. Slíkar þvingunaraðgerðir stuðla að aðgerðum Sambandsins til að standa vörð um gildi sín, grundvallarhagsmuni og öryggi, til að styrkja og styðja við meginreglur þjóðaréttar og til að koma í veg fyrir átök og efla alþjóðaöryggi, í samræmi við a-, b- og c-lið 2. mgr. 21. gr. sáttmálans um Evrópusambandið.
9) Breyta ætti titli ákvörðunar (SSUÖ) 2023/1532 og koma ætti á ferðatakmörkunum og aðgerðum til frystingar eigna gagnvart aðilum og rekstrareiningum sem bera ábyrgð á, styðja, framkvæma eða njóta góðs af aðgerðum eða stefnum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær.
10) Því ætti að breyta ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 er breytt sem hér segir:
1) Í stað titilsins kemur eftirfarandi:
„Ákvörðun ráðsins (ESB) 2023/1532 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær“.
2) Ákvæðum 1. mgr. 2. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað iii. liðar b-liðar kemur eftirfarandi:
„iii. til einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015),“.
b) Eftirfarandi lið er bætt við:
„ba) sem bera ábyrgð á, styðja, framkvæma eða njóta góðs af aðgerðum eða stefnum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær, eða“.
c) Í stað c-liðar kemur eftirfarandi:
„c) sem tengjast einstaklingum sem um getur í a-, b- eða ba-lið,“.
3) Ákvæðum 1. mgr. 3. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað iii. liðar b-liðar kemur eftirfarandi:
„iii. til einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015),“.
b) Eftirfarandi lið er bætt við:
„ba) sem bera ábyrgð á, styðja, framkvæma eða njóta góðs af aðgerðum eða stefnum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær, eða“.
c) Í stað c-liðar kemur eftirfarandi:
„c) sem tengjast einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a-, b- eða ba-lið,“.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 22. maí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. DAMIANOS
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 20, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2023/1532/oj).
(2) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1336 frá 14. maí 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2024/1336, 15.5.2024, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2024/1336/oj).
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1164
frá 22. maí 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir
í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands
gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar
í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1157 frá 22. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 (1) um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu,
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 20. júlí 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 (2) og reglugerð (ESB) 2023/1529 (3) um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu.
2) Hinn 14. maí 2024 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2024/1336 (4) sem breytti ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 og víkkaði út gildissvið þvingunaraðgerðanna þannig að það næði yfir aðila sem láta í té, selja eða koma á annan hátt að tilflutningi á ómönnuðum loftförum eða flugskeytum, sem framleidd eru í Íran, eða tengdri tækni, til vopnaðra hópa og rekstrareininga sem grafa undan friði og öryggi í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, eða til aðila, rekstrareininga eða stofnana sem brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015).
3) Í ljósi alvarleika ástandsins og til að bregðast við aðgerðum Írans sem grafa undan frelsinu til siglinga, þ.m.t. réttinum til gegnumferðar og til friðsamlegrar ferðar, í Austurlöndum nær, samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1157 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 til að innleiða frekari þvingunaraðgerðir að því er varðar Íran.
4) Rétt þykir að breyta viðmiðunum fyrir skrána og heimila aðgerðir til frystingar eigna gagnvart einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem bera ábyrgð á, styðja, framkvæma eða njóta góðs af aðgerðum eða stefnum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær. Einnig þykir rétt að breyta titlinum.
5) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) 2023/1529 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (ESB) 2023/1529 er breytt sem hér segir:
1) Í stað titilsins kemur eftirfarandi:
„Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1529 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær“.
2) Ákvæðum 1. mgr. 3. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað iii. liðar b-liðar kemur eftirfarandi:
„iii. til einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana sem brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015),“.
b) Eftirfarandi lið er bætt við:
„ba) sem bera ábyrgð á, styðja, framkvæma eða njóta góðs af aðgerðum eða stefnum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær, eða“.
c) Í stað c-liðar kemur eftirfarandi:
„c) sem tengjast einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a-, b- eða ba-lið,“.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 22. maí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. DAMIANOS
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/1157, 26.5.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec_impl/2026/1157/oj.
(2) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 20, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2023/1532/oj).
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1529 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1529/oj).
(4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1336 frá 14. maí 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2024/1336, 15.5.2024, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2024/1336/oj).