Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Náttúrurannsóknir - náttúruvernd, Hálendið
Undirritunardagur
9. október 2017
Útgáfudagur
12. október 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 870/2017
9. október 2017
AUGLÝSING
um friðland í Þjórsárverum.
1. gr. Um friðlýsinguna.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur í samræmi við Náttúruverndaráætlun 2009-2013, þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða og í kjölfar þriggja mánaða opins umsagnarferils, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013, ákveðið að friðlýsa Þjórsárver og Hofsjökul sem friðland í samræmi við 49. gr. laganna. Við ákvörðun um friðlýsingu þessa var höfð hliðsjón af samningnum um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979), sbr. Stjórnartíðindi C 17/1993, samningnum um líffræðilega fjölbreytni (Rio de Janeiro 1992), sbr. Stjórnartíðindi C 3/1995 og samþykkt um votlendi sem hafa alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (Ramsar 1971), sbr. Stjórnartíðindi C 1/1978.
Hið friðlýsta svæði er 156.260,12 hektarar að stærð.
2. gr. Markmið friðlýsingarinnar.
Markmið friðlýsingarinnar er að tryggja víðtæka og markvissa verndun gróðurlendis Þjórsárvera í heild sinni, vistkerfi veranna, rústamýravist, varpstöðva heiðagæsa, víðernis, sérstakrar landslagsheildar og menningarminja, auk fræðslu til almennings um verndargildi svæðisins.
Vernda skal líffræðilega fjölbreytni, vatnafar og vistgerðir Þjórsárvera sem eru fjölbreyttasta, stærsta og samfelldasta gróðurvin hálendisins og mikilvægt búsvæði dýra og plantna. Áhersla er á vernd rústamýravistar en vistgerðin telst alþjóðlega verndarþurfi. Alþjóðlegt verndargildi rústamýra byggir m.a. á ákvæðum Bernarsamningsins, en samkvæmt honum eru rústamýrar flokkaðar sem búsvæði í hættu. Rústamýravist er óvenju fjölbreytt vistgerð miðað við aðrar þekktar vistgerðir á hálendi Íslands og hefur verulegt vísinda- og fræðslugildi. Votlendi svæðisins hefur alþjóðlegt gildi sem varpstöð heiðargæsar, sbr. Ramsarsamninginn. Markmið friðlýsingarinnar er einnig að vernda landslagsheild Þjórsárvera, samspil jökuls og jökullandslags við gróðurlendið í verunum og menningarminjar, svo sem gæsaréttir og rústir útilegumanna. Vernd menningarminja fer samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
3. gr. Mörk verndarsvæðisins.
Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á korti og afmarkast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka I.
4. gr. Umsjón með hinu friðlýsta svæði.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með friðlandinu en stofnuninni til ráðgjafar er 10 manna nefnd og skipar hvert sveitarfélag einn fulltrúa og Umhverfisstofnun einn og er sá formaður nefndarinnar. Með nefndinni skulu starfa fulltrúar Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands. Skipunartími nefndarinnar er sá sami og kjörtímabil sveitarstjórna. Skal ráðgjafanefndin funda minnst einu sinni á ári. Umhverfisstofnun er heimilt að höfðu samráði við ráðgjafanefnd að setja ítarlegri reglur um umgengni í friðlandinu, sbr. 81. gr. laga nr. 60/2013.
5. gr. Stjórnunar- og verndaráætlun.
Umhverfisstofnun ber ábyrgð á gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið í samvinnu við sveitarfélög, Náttúrufræðistofnun Íslands og eftir atvikum aðrar fagstofnanir og hagsmunaaðila, sbr. 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjalla um landnýtingu, landvörslu, rannsóknir, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks.
Kostnaður vegna yfirstjórnar, umsjónar og rekstrar friðlandsins greiðist af Umhverfisstofnun.
6. gr. Rannsóknir og vöktun.
Friðlandið skal vaktað m.t.t. framvindu náttúrulegra ferla, breytinga á rústamýravist og öðrum verðmætum vistgerðum í verunum og stofnum fugla, sérstaklega heiðagæsar.
Náttúrufræðistofnun Íslands ber ábyrgð á vöktun í friðlandinu, sbr. 74. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Vöktunin skal vera unnin í samráði við Umhverfisstofnun og vera hluti af stjórnunar- og verndaráætlun. Skýrslur um niðurstöður vöktunar skulu vera aðgengilegar Umhverfisstofnun. Nánar skal kveðið á um rannsóknir og vöktun í stjórnunar- og verndaráætlun.
7. gr. Fræðsla.
Umhverfisstofnun, í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, mun koma upp skiltum við leiðir inn á friðlandið og hefur frumkvæði að fjölbreyttri fræðslu um svæðið. Nánar skal kveðið á um fræðslu í stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins.
8. gr. Verndun gróðurs og dýralífs.
Vernda skal líffræðilega fjölbreytni veranna, þ.m.t. heildstætt vistkerfi þeirra, svo þau megi þróast samkvæmt eigin lögmálum náttúrunnar. Þar sem rústamýravist þolir illa rask eru allar athafnir sem leitt geta til röskunar á vistgerðinni óheimilar. Sérstök áhersla skal lögð á verndun heiðagæsa og rústamýravistar.
Óheimilt er að sleppa eða dreifa framandi lífverum á verndarsvæðinu þ.m.t. rækta framandi plöntutegundir, sbr. reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda nr. 583/2000. Fjarlægja skal framandi tegundir plantna og/eða dýra sem hafa verið flutt inn á svæðið eða berast inn á það. Nánari útfærsla á ákvæðinu verður í stjórnunar- og verndaráætlun.
9. gr. Verndun jarðmyndana.
Allt rask á jarðmyndunum er óheimilt í friðlandinu, þ.m.t. áletranir hvers konar, efnistaka úr jökulgörðum o.s.frv. nema með sérstakri heimild skv. 11. gr. Svæðið og náttúrufar þess skal fá að þróast eftir náttúrulegum lögmálum og á eigin forsendum.
10. gr. Verndun menningarminja.
Óheimilt er að hrófla við menningarminjum, svo sem gæsaréttum og rústum útilegumanna í friðlandinu. Um vernd menningarminja fer eftir lögum um menningarminjar nr. 80/2012. Nánar skal kveða á um skráningu menningarminja í stjórnunar- og verndaráætlun.
11. gr. Landnotkun og mannvirkjagerð.
Allar framkvæmdir, svo sem jarðrask og mannvirkjagerð, sem haft geta í för með sér truflun eða röskun á dýralífi og/eða eyðileggingu á rústamýravist og öðrum vistgerðum er óheimil í friðlandinu. Óheimilt er að breyta rennsli vatna og vatnsborðshæð á verndarsvæðinu, sbr. þó 2.-4. mgr.
Leyfi Umhverfisstofnunar og viðkomandi sveitarfélags þarf til framkvæmda í friðlandinu, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd, skipulagslög nr. 123/2010, lög um mannvirki nr. 160/2010 og þegar við á lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta nr. 58/1998.
Heimildir til mannvirkjagerðar vegna fræðslu og ferðaþjónustu sem eru í staðfestu aðalskipulagi sveitarfélaga halda gildi sínu án þess að leita þurfi samþykkis Umhverfisstofnunar. Einnig er heimilt að halda við mannvirkjum, svo sem virkjanamannvirkjum, skálum, vegum og námum sem þegar eru í notkun, án þess að leita þurfi samþykkis Umhverfisstofnunar og fer um þær leyfisveitingar skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Heimilt er að reisa fræðslumannvirki til að ná fram markmiðum friðlýsingarinnar, sbr. 2. gr., að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar og viðkomandi sveitarfélags.
Heimilt er að grípa til aðgerða á svæðinu til verndar gróðri og dýralífi í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlun og að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar og viðkomandi sveitarfélags.
Um upprekstur á svæðið fer eftir reglum sem viðkomandi sveitarstjórnir setja að fenginni umsögn ráðgjafanefndar.
Hefðbundnar nytjar í ám og vötnum eru heimilar eins og verið hefur.
12. gr. Umferð í friðlandinu.
Almenningi er heimil för um friðlandið en skylt er að ganga vel og snyrtilega um svæðið. Óheimilt er að skilja eftir sorp í friðlandinu og skulu ferðamenn og aðrir sem um svæðið fara taka allt það sem farið er með inn á svæðið með sér til baka.
Umferð um og í nálægð við varplönd heiðagæsa er bönnuð á tímabilinu 1. maí til 20. júní, sbr. viðauka II, kort af svæði takmarkaðrar umferðar vegna heiðagæsavarps. Umhverfisstofnun er heimilt að veita leyfi til umferðar á tímabilinu t.d. vegna nauðsynlegs viðhalds mannvirkja eða rannsókna sem ekki er unnt að sinna á öðrum tíma.
Umferð vélknúinna farartækja er heimil í friðlandinu eftir skilgreindum vegum, sbr. kort í viðauka III og gildandi skipulag.
Heimilt er að aka á jöklum og snævi þakinni jörð svo fremi jörð sé frosin eða snjóþekjan traust og augljóst að ekki sé hætta á náttúruspjöllum að undanskildum afmörkuðum svæðum, sbr. kort í viðauka IV. Á þeim svæðum er akstur óheimill á snævi þakinni og frosinni jörð. Umhverfisstofnun er þó heimilt að veita leyfi til umferðar t.d. vegna nauðsynlegs viðhalds mannvirkja eða rannsókna.
Ríðandi mönnum er heimil för um svæðið á hefðbundnum leiðum og afmörkuðum áningarstöðum, sbr. kort í viðauka III. Hrossabeit er bönnuð nema í viðurkenndum áningarhólfum. Nánar er fjallað um skipulag og fjölda áningarhólfa í stjórnunar- og verndaráætlun.
Hefðbundinn réttur bænda til smölunar helst eins og verið hefur. Umferð vegna refa- og minkaveiða á vegum sveitarfélaga er heimil eins og verið hefur.
Heimilt er að fara á reiðhjólum um friðlandið en fylgja skal vegum svo ekki hljótist af náttúruspjöll.
Óheimilt er að vera með lausa hunda í friðlandinu þar sem lausir hundar geta truflað dýralíf, en notkun þarfahunda er heimil á svæðinu.
Flug neðan 3.000 feta hæðar yfir friðlandinu utan jökuls er óheimilt á tímabilinu 10. maí til 10. ágúst.
13. gr. Refa- og minkaveiðar.
Notkun skotvopna er óheimil á svæðinu, nema til refa- og minkaveiða.
Veiðar á ref eru heimilar skv. almennum reglum þar um enda skulu þær stundaðar á vegum viðkomandi sveitarfélaga og í samráði við Umhverfisstofnun. Halda skal skrá yfir greni og veidd dýr og skila til Umhverfisstofnunar.
Stefnt er að útrýmingu minks. Veiðar á mink skulu stundaðar á vegum viðkomandi sveitarfélaga og í samráði við Umhverfisstofnun. Halda skal skrá yfir veidd dýr og skila til Umhverfisstofnunar.
14. gr. Undanþágur frá banni við akstri utan vega.
Umhverfisstofnun er heimilt að veita undanþágu frá banni við akstri utan vega vegna rannsókna og verndaraðgerða, að fenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands.
15. gr. Refsiákvæði.
Brot gegn reglum auglýsingar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 1. mgr. 90. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
16. gr. Gildistaka.
Friðlýsingin öðlast þegar gildi
Auglýsing um friðland í Þjórsárverum, nr. 597/1987, fellur úr gildi við gildistöku auglýsingar þessarar.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. október 2017.
Björt Ólafsdóttir.
Sigríður Auður Arnardóttir.
VIÐAUKAR
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 12. október 2017