Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. september 2019

Útgáfudagur

24. september 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 839/2019

9. september 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 890/2016 um doktorsnám og doktorspróf við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðalagsins „MS-/MA-prófi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: meistaraprófi.
  2. 3. málsl. 1. mgr. breytist og orðast svo: Heimilt er að innrita nemanda í samþætt doktorsnám og meistaranám að loknu BS-/BA-námi, eða samþætt doktorsnám og kandídatsnám í læknisfræði að loknu þriðja námsári til kandídatsprófs í læknisfræði við læknadeild, þ.e. að loknu 180 eininga námi til BS-prófs í læknisfræði.

2. gr.

Í stað orðanna „telst 180 einingar“ í 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglnanna kemur: telst 180 eða 240 einingar.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglnanna:

  1. 2. málsl. 1. mgr. breytist og orðast svo: Hafi doktorsnemi ekki þegar lokið námskeiðum í tölfræði, vísindalegri aðferðafræði og siðfræði er honum skylt að taka slík námskeið.
  2. Í stað núverandi 1., 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ætlast er til að doktorsnemi taki þátt í ráðstefnum á viðkomandi fræðasviði.

4. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar í samræmi við VI. kafla reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 og með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar hafa verið samþykktar af deildum heilbrigðisvísindasviðs, stjórn fræðasviðsins og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. september 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 24. september 2019

Tengd mál