Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni

Undirritunardagur

8. nóvember 2017

Útgáfudagur

27. nóvember 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1020/2017

8. nóvember 2017

REGLUGERÐ

um (2.) breytingu á reglugerð nr. 970/2013 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins.

1. gr.

Við 13. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

5) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/605 frá 29. mars 2017 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1005/2009 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins, sem vísað er til í tl. 21aa, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 373.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/605 frá 29. mars 2017 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1005/2009 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 8. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 8. nóvember 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2017

Tengd mál