Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál, Almannatryggingar

Undirritunardagur

15. apríl 2026

Útgáfudagur

16. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 371/2026

15. apríl 2026

REGLUGERÐ

um orlofs- og desemberuppbætur til örorku- og hlutaörorkulífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega á árinu 2026.

1. gr. Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um orlofs- og desemberuppbætur til örorku- og hlutaörorkulífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega á árinu 2026.

Orlofsuppbót skal vera 40% af þeirri fjárhæð sem hlutaðeigandi örorku- eða hlutaörorkulífeyrisþegi eða sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegi á rétt á samkvæmt reglugerð þessari og skal greidd 1. júlí 2026. Desemberuppbót skal vera 60% af þeirri fjárhæð sem hlutaðeigandi örorku- eða hlutaörorkulífeyrisþegi eða sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegi á rétt á samkvæmt reglugerð þessari og skal greidd 1. desember 2026.

Tryggingastofnun annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr. Orlofs- og desemberuppbætur til örorkulífeyrisþega.

Fullar orlofs- og desemberuppbætur til örorkulífeyrisþega skulu vera 137.857 kr.

Orlofs- og desemberuppbætur skv. 1. mgr. skulu lækka um 2% af eigin tekjum lífeyrisþega, sbr. 1., 2., 6., 7. og 8. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, umfram almennt frítekjumark skv. 3. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, uns þær falla niður.

3. gr. Orlofs- og desemberuppbætur til hlutaörorkulífeyrisþega.

Fullar orlofs- og desemberuppbætur til hlutaörorkulífeyrisþega skulu vera 82% af fullum orlofs- og desemberuppbótum til örorkulífeyrisþega skv. 1. mgr. 2. gr. eða 113.043 kr.

Orlofs- og desemberuppbætur skv. 1. mgr. skulu lækka um 2% af eigin tekjum lífeyrisþega, sbr. 1., 2., 6., 7. og 8. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, umfram almennt frítekjumark skv. 1. málsl. 4. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, uns þær falla niður.

4. gr. Orlofs- og desemberuppbætur til sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega.

Fullar orlofs- og desemberuppbætur til sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega skulu vera 137.857 kr.

Orlofs- og desemberuppbætur skv. 1. mgr. skulu lækka um 2% af eigin tekjum greiðsluþega, sbr. 1., 2., 6. og 8. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, umfram almennt frítekjumark skv. 1. málsl. 5. mgr. 30. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, uns þær falla niður.

5. gr. Áhrif réttindahlutfalls.

Fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta til örorkulífeyrisþega skv. 1. mgr. 2. gr. og hlutaörorkulífeyrisþega skv. 1. mgr. 3. gr. reiknast samkvæmt réttindahlutfalli eins og það er ákvarðað skv. 3. og 4. mgr. 24. gr. og 3. og 4. mgr. 25. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007.

6. gr. Greiðslur hluta úr ári.

Hafi örorku- eða hlutaörorkulífeyrisþegi eða sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegi fengið greiðslur hluta úr ári skal fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta reiknuð í hlutfalli við þann fjölda mánaða á árinu sem viðkomandi fékk greiðslur.

7. gr. Ofgreiðsla og vangreiðsla.

Ef fyrir liggur að orlofsuppbætur 1. júlí 2026 hafi verið of- eða vangreiddar skal það leiðrétt við greiðslu desemberuppbóta 1. desember 2026. Ákvæði 34. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, sbr. einnig 33. gr. laganna, gilda eftir því sem við á.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 63. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 15. apríl 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson

félags- og húsnæðismálaráðherra.

Bjarnheiður Gautadóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. apríl 2026

Tengd mál