Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

21. júlí 2026

Útgáfudagur

5. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 872/2026

21. júlí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna ákvæða fyrir vötn, ár og sjó V1.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 21. júlí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. júní 2026.

Í breytingunni felst að skipulagsákvæði fyrir vötn, ár og sjó V1 eru uppfærð til að skýra heimildir til viðhalds og verndar fjölbreytileika vistkerfa á svæðum sem eru á náttúruminjaskrá, án þess að landnotkun svæðanna breytist.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. júlí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 5. ágúst 2026

Tengd mál