Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Sjóðir og stofnanir, Fjármálastarfsemi, Ökutæki, Fjarskipti, Nýsköpunarverkefni
Undirritunardagur
28. desember 2022
Útgáfudagur
30. desember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 128/2022
28. desember 2022
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (nýsköpun, fjöldatakmörk vistvænna ökutækja o.fl.).
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009.
1. gr.
Í stað orðanna „og 2023“ í ákvæði til bráðabirgða I í lögunum kemur: 2023, 2024 og 2025.
2. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða II í lögunum bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. skal hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2024 og 2025 vera samtals 1.100.000.000 kr., þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 200.000.000 kr. vegna aðkeyptrar rannsóknar- eða þróunarvinnu skv. 6. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XVIII í lögunum:
- Í stað ártalsins „2022“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 2023.
- Í stað orðanna „árinu 2022“ í 2. mgr. kemur: árunum 2022–2023.
III. KAFLI Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögunum:
- 1. og 2. tölul. 7. mgr. falla brott.
- 1. málsl. 1. tölul. 10. mgr. orðast svo: Af rafmagns- eða vetnisbifhjóli að hámarki 1.440.000 kr. frá 1. janúar 2020 til og með 30. júní 2020, að hámarki 1.560.000 kr. frá 1. júlí 2020 til og með 31. desember 2022 og að hámarki 1.320.000 kr. frá 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023.
- 1. málsl. 1. tölul. 11. mgr. orðast svo: Af rafmagns- eða vetnisbifhjóli að hámarki 6.000.000 kr. frá 1. janúar 2020 til og með 30. júní 2020, að hámarki 6.500.000 kr. frá 1. júlí 2020 til og með 31. desember 2022 og að hámarki 5.500.000 kr. frá 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023.
- Á eftir orðunum „Létt bifhjól“ í 3. málsl. 2. tölul. 11. mgr. kemur: í flokki II.
IV. KAFLI Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993.
5. gr.
Í stað orðanna „árið 2022“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða EE í lögunum kemur: árin 2022 og 2023.
V. KAFLI Breyting á lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005.
6. gr.
Í stað ártalsins „2022“ í 2. málsl. 9. gr. laganna kemur: 2023.
VI. KAFLI Breyting á lögum um verðbréfasjóði, nr. 116/2021.
7. gr.
Á eftir 2. mgr. 56. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ef rekstrarfélag útbýr eða útvegar lykilupplýsingaskjal fyrir verðbréfasjóð sem það rekur, sem uppfyllir skilyrði laga um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, nr. 55/2021, skal það teljast uppfylla kröfur sem gerðar eru til lykilupplýsinga samkvæmt lögum þessum. Í slíkum tilvikum þarf rekstrarfélag ekki að útbúa lykilupplýsingar í samræmi við lög þessi.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 86. gr. laganna:
-
Á
eftir
1.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Ef rekstraraðili útbýr eða útvegar lykilupplýsingaskjal fyrir sérhæfðan sjóð fyrir almenna fjárfesta sem hann rekur, sem uppfyllir skilyrði laga um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, nr. 55/2021, skal það teljast uppfylla kröfur sem gerðar eru til lykilupplýsinga samkvæmt lögum þessum. Í slíkum tilvikum þarf rekstraraðili ekki að útbúa lykilupplýsingar í samræmi við lög þessi. - Í stað „4. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 5. mgr.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
9. gr.
Á eftir orðinu „Sviss“ í f-lið 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: í Bretlandi.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2023.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 1., 2., 6. og 9. gr. þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 28. desember 2022.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Bjarni Benediktsson.
A deild - Útgáfud.: 30. desember 2022