Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

8. desember 2025

Útgáfudagur

22. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1435/2025

8. desember 2025

GJALDSKRÁ

fráveitu Dalvíkurbyggðar.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalvíkurbyggð samkvæmt gjaldskrá þessari og samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð, nr. 1490/2023.

2. gr.

Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins og skal það vera eftirfarandi:

  1. Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 20.579 kr. pr. íbúð og 429 kr. pr. fermetra húss.
  2. Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 47.418 kr. pr. eign og 429 kr. pr. fermetra húss.
  3. Álagning samkvæmt a- og b-lið skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægri en 0,25% af fast­eignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.

3. gr.

Sveitarfélagið annast tæmingu rotþróa í eigu fasteignaeigenda í Dalvíkurbyggð og innheimtir sérstakt rotþróargjald til að standa straum af kostnaði við tæmingu, urðun seyru og umsjón með verkinu, sbr. 8. gr. samþykktar um fráveitur og rotþrær í Dalvíkurbyggð, nr. 1490/2023.

Árlegt rotþróargjald sem lagt er á hverja íbúð, þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár, er 15.954 kr. Að auki er greitt árlegt fast gjald 18.868 kr. á hverja íbúð til að standa straum af kostnaði vegna niðursetningar á rotþróm sem settar voru niður fyrir árið 2024. Af öðru húsnæði sem fjallað er um í b-lið 2. gr. greiðist sambærilegt rotþróargjald þ.e. fast gjald og rotþróargjald.

4. gr.

Með vísan til 14. gr. samþykktar um fráveitur og rotþrær í Dalvíkurbyggð, nr. 1490/2023, er lagt á tengigjald fráveitu sem er 15% af útreiknuðu gatnagerðargjaldi eins og það er á hverjum tíma. Það innheimtist sérstaklega og nýtur sama lögveðsréttar og gatnagerðargjald.

5. gr.

Gjalddagar fráveitu- og rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

6. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir til þess að öðlast gildi við álagningu gjalda á árinu 2026. Jafnframt fellur brott gjaldskrá nr. 1531/2024.

Samþykkt í veitu- og hafnaráði Dalvíkurbyggðar 19. september 2025.

Samþykkt í byggðarráði Dalvíkurbyggðar 6. nóvember 2025.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025.

Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi.

Dalvíkurbyggð, 8. desember 2025.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025

Tengd mál