Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Siglingastofnun Íslands
Málaflokkur
Þingvellir, Köfun
Undirritunardagur
12. febrúar 2013
Útgáfudagur
22. febrúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 165/2013
12. febrúar 2013
FYRIRMÆLI
vegna köfunar og yfirborðsköfunar í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
1. gr.
Markmið.
Markmið með fyrirmælum þessum er að bæta öryggi við köfun og yfirborðsköfun í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Til að ná því markmiði eru settar tilteknar reglur um starfsemi þeirra sem bjóða upp á ferðaþjónustu í köfun og yfirborðsköfun í þjóðgarðinum sem og þeirra sem kafa þar á eigin vegum.
Þingvallanefnd ákveður á hverjum tíma hvar köfun og yfirborðsköfun er heimil í þjóðgarðinum.
2. gr.
Almenn ákvæði.
Köfun og yfirborðsköfun er ætíð á eigin ábyrgð. Óheimilt er að kafa einn síns liðs í Silfru og skulu kafarar kynna sér vel aðstæður og þær reglur sem gilda um köfun í Silfru og almennar umgengnisreglur í þjóðgarðinum.
3. gr.
Skilgreiningar.
Með hugtakinu yfirborðsköfun er átt við allar aðrar athafnir manns sem fara fram á yfirborði og/eða undir yfirborði vatns óháð búnaði sem fellur ekki undir 2. gr. laga um köfun nr. 31/1996.
4. gr.
Almenn fyrirmæli.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem selja ferðir í köfun í þjóðgarðinum á Þingvöllum skulu uppfylla öll opinber skilyrði fyrir rekstri ferðaþjónustu og hafa nauðsynleg leyfi og tryggingar í gildi fyrir slíkri ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustufyrirtæki skulu hafa öryggis- og viðbragðsáætlun, sem samþykkt er af Siglingastofnun Íslands.
Kafarar í Silfru skulu á hverjum tíma ekki vera fleiri en 8 að grynningum skilgreindum á korti í fylgiskjali.
Gestir með hverjum leiðsögumanni skulu ekki vera fleiri en 4 hverju sinni við köfun í Silfru.
Gestir með hverjum leiðsögumanni skulu ekki vera fleiri en 8 hverju sinni við yfirborðsköfun í Silfru.
Ekki er heimilt að kafa dýpra en 18 metra í Silfru.
Köfun í hella, ranghala og göng er bönnuð.
Þeir sem kafa á eigin vegum þurfa að vera með alþjóðlega viðurkennd réttindi sem áhugakafarar og framvísa skírteini þar um, sbr. staðal EN 14153-2/ISO 24801-2 (Autonomous Diver - Áhugakafari).
5. gr.
Öryggiskröfur og búnaður.
Leiðsögumaður ferðaþjónustufyrirtækis skal hafa þjálfun sem uppfyllir staðalinn EN 14153-3/ISO 24801-3 (Dive Leader – Fararstjóri í áhugaköfun/köfun). - Hæfniskröfur fyrir áhugakafara á 3. stigi með sjálfbyrgan köfunarbúnað (Scuba) eða hærri gráðu til að mega leiðsegja í köfunarferðum (köfun og yfirborðsköfun) í þjóðgarðinum á Þingvöllum og vera a.m.k. handhafi F-köfunarskírteins skv. reglugerð um köfun nr. 535/2001, með síðari breytingu nr. 762/2012.
Leiðsögumenn hópa í köfun og yfirborðsköfun á vegum ferðaþjónustufyrirtækis í þjóðgarðinum á Þingvöllum verða að hafa náð 20 ára aldri. Leiðsögumenn skulu vera auðkenndir.
Ef ferðaþjónustufyrirtæki fer á sama tíma með hóp í köfun og yfirborðsköfun skal a.m.k. einn leiðsögumaður fylgja hvorum hópi í vatninu enda þótt hámarksfjölda gesta með hverjum leiðsögumanni, sbr. hér að framan, sé ekki náð.
Ekki má synda fyrir ofan kafara við köfun.
Gestir í yfirborðsköfun og köfun skulu vera í heilgalla, þurrdragt, blautdragt, með hettu, hanska, fit og með annan viðeigandi búnað. Tryggja skal sýnileika gesta í yfirborðsköfun.
Leiðsögumenn í yfirborðsköfun og köfun skulu vera í þurrdragt eða blautdragt með fit og annan viðeigandi búnað.
Köfunarbúnaður skal uppfylla kröfur íslenskra laga og reglugerða þar að lútandi.
Köfunarbúnaður skal vera viðurkenndur til notkunar í köldu vatni.
Ferðaþjónustufyrirtæki skulu meta reynslu og þekkingu kafara til köfunar í þurrbúningi.
Ferðaþjónustutæki skal ganga úr skugga um að þeir sem kafa séu með alþjóðlega viðurkennd réttindi sem áhugakafarar og framvísi skírteini þar um, sbr. staðal EN 14153-2/ISO 24801-2 (Autonomous Diver – Áhugakafari).
Leiðsögumenn ferðaþjónustufyrirtækja skulu hafa lokið viðurkenndu námskeiði í vettvangshjálp.
Öll ferðaþjónustufyrirtæki skulu hafa súrefnisgjafabúnað og almennan skyndihjálparútbúnað sem hluta af búnaði sínum á staðnum bæði í köfun og yfirborðsköfun.
6. gr.
Öryggisbúnaður.
Þeir sem bjóða upp á ferðaþjónustu í köfun í þjóðgarðinum skulu hafa eftirfarandi öryggisbúnað tiltækan:
Súrefnisgjafartæki.
Tækið skal uppfylla þau skilyrði að hægt sé að gefa tveim sjúklingum súrefni í 60 mínútur, miðað við 100% súrefnisgjöf á 15 l/min flæði, (15 l/min x 60 mínútur x 2 kafarar) samtals 1800 lítrar eða 1800/200 bar = 9 lítra hylki. Rýmd súrefnisloftlindarinnar miðast við viðbragðstíma almennrar neyðarþjónustu til að komast til Þingavalla, 50 mínútur.
Öryggisskæri.
Hver
leiðsögumaður
skal
hafa
á
sér
öryggisskæri
(EMT
EMS
Style
All-Purpose
Scissors
/
EMS
Safety
shears).
Leitarbúnað.
Á
hverjum
tími
skal
skipuleggjandi
köfunarferðar
hafa
til
reiðu
búnað
til
að
geta
hafið
tafarlausa
leit
neðan
yfirborðs.
Búnaðurinn
er
að
lágmarki:
Auka
loftlind
til
köfunar.
Rýmd
loftlindarinnar
skal
tryggja
nægt
loftmagn
til
20
mínútna
köfunar
á
hámarksdýpi
köfunarsvæðisins
og
skal
miða
við
45
lítra
loftnotkun
á
mínútu
á
yfirborði.
Kefli með línu (Dive reel) með 50 metra línu.
Neðansjávarljós.
7. gr.
Eftirlit.
Um eftirlit með fyrirmælum þessum fer eftir 6. gr. laga um köfun nr. 31/1996.
8. gr.
Gildistaka.
Fyrirmæli þessi eru sett samkvæmt 4. gr. reglugerðar um köfun nr. 535/2001 og taka gildi 1. mars 2013.
Siglingastofnun Íslands, 12. febrúar 2013.
Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri.
Helgi Jóhannesson.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2013