Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Þjóðgarðar
Undirritunardagur
6. mars 2026
Útgáfudagur
20. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 266/2026
6. mars 2026
REGLUGERÐ
um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
1. gr. Gjaldtaka.
Náttúruverndarstofnun innheimtir gestagjöld eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi fyrir gistingu á þjónustusvæði, sbr. 2.-4. gr.
2. gr. Gisting á tjaldsvæði.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldsvæði:
| 1. | Almennt gjald | 2.800 kr. |
| 2. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | 2.300 kr. |
Aðgangur barna, 16 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldsvæði er gjaldfrjáls.
Aðgengi að sturtum, þvottavél og þurrkara er innifalið í gistigjaldi í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum.
3. gr. Lengri afnot af tjaldsvæðum.
Náttúruverndarstofnun er heimilt að bjóða upp á afslætti fyrir gesti sem gista samfellt í fimm nætur eða lengur. Afsláttur skal vera sem hér segir:
| 1. | Fimm dagar og allt að einum mánuði | 15% |
| 2. | Einn mánuður eða lengri tími | 25% |
Óski einstaklingar eða hópar eftir langtímadvöl, mánuði eða lengur, er heimilt að gera um það sérstaka samninga. Þessir samningar skulu tilgreina fjölda einstaklinga, fjölda gistinátta, gjaldflokka (fullorðnir, öryrkjar, börn) og afslátt sem samræmist ákvæðum reglugerðar Vatnajökulsþjóðgarðs og taka tillit til notkunar á rafmagni og annarri þjónustu.
4. gr. Gisting í skála.
Gjaldið miðast við gistingu í skála yfir eina nótt fyrir hvern einstakling.
| 1. | Í Snæfellsskála | 6.900 kr. |
| 2. | Í Blágiljum | 5.900 kr. |
Ekki er innheimt gjald fyrir börn 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum. Veittur er 50% afsláttur af gistigjaldi fyrir börn 13 til 18 ára og 20% afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja.
Í verðskrá skal koma fram hvaða þjónusta er innifalin í gistigjaldi fyrir hvern skála fyrir sig.
5. gr. Svæðisgjald.
Svæðisgjald er lagt á við inngang að þjónustusvæðum sem stjórn þjóðgarðsins hefur ákveðið að skuli vera gjaldskyld og gildir mest í sólarhring (frá kl. 00.00 – 24.00):
| Flokkur A – Fólksbifreið, 5 farþega og færri | 1.110 kr. |
| Flokkur B – Fólksbifreið, 6-9 farþega | 1.440 kr. |
| Flokkur C – Rúta, 10-21 farþega | 2.770 kr. |
| Flokkur D – Rúta, 22-32 farþega | 5.200 kr. |
| Flokkur E – Rúta, 33 farþega og fleiri | 9.400 kr. |
| Bifhjól | 450 kr. |
Veittur er 50% afsláttur af svæðisgjaldi ef annað gjaldskylt þjónustusvæði þjóðgarðsins hefur áður verið heimsótt innan sólarhringsins (frá kl. 00.00-24.00) og fullt gjald greitt þar.
6. gr. Ýmis þjónusta.
Gjald fyrir ýmsa aðra þjónustu:
| 1. | Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring | 1.500 kr. |
| 2. | Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | 500 kr. |
| 3. | Sturta (gashituð) | 500 kr. |
7. gr. Umsýsla og eftirlit með samningum.
Aðili samnings greiðir 100.000 kr. umsýslugjald vegna móttöku umsóknar, málsmeðferðar og samningsgerðar um atvinnutengda starfsemi.
Um gjöld vegna eftirlits með atvinnutengdri starfsemi fer samkvæmt ákvæðum samnings og útreikningi á grundvelli 9. gr. reglugerðar þessarar.
Um gjöld vegna afnota af landi, aðstöðu og aðra nýtingu innviða fer samkvæmt ákvæðum nýtingarsamnings og eftir atvikum ákvæðum laga nr. 100/2021, um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni, en þau lög gilda einnig um gerð sérleyfis- og rekstrarleyfissamninga innan marka þjóðgarðsins.
8. gr. Gjald vegna leyfa.
Umsækjandi um leyfi greiðir:
- 62.400 kr., eða sem nemur þriggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 9. gr., fyrir umsókn vegna lendinga loftfara, listviðburða, samkomuhalds, rannsókna og annarra viðburða og verkefna sem kalla á aðstöðu, mannafla eða meðferðar tækja og falla ekki undir 2. og 3. tölul. þessarar greinar.
- 83.200 kr., eða sem nemur fjögurra klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 9. gr., fyrir umsókn vegna kvikmyndagerðar og/eða myndatöku;
- 41.600 kr., eða sem nemur tveggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 9. gr., fyrir umsókn vegna ómannaðra loftfara einstaklinga til einkanota á allt að tveimur friðlýstum svæðum. Heimilt er að falla frá leyfisgjaldi hafi umsækjandi einnig sótt um notkun ómannaðs loftfars á öðru friðlýstu svæði sem heyrir undir gjaldskyldu skv. gjaldskrá fyrir verkefni og þjónustu Náttúruverndarstofnunar.
Hafi vinnsla og útgáfa leyfis í för með sér fleiri vinnustundir fyrir Náttúruverndarstofnun en sem nemur gjaldi skv. 2. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 9. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu leyfis liggur fyrir.
Náttúruverndarstofnun er heimilt að innheimta aukalega gjald sem nemur 41.600 kr., eða sem nemur tveggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 9. gr., vegna umsókna sem berast innan fimm virkra daga frá fyrirhuguðu verkefni vegna framkvæmda, athafna og viðburða.
Einstaklingsgjald fyrir atvinnuleyfi til fyrirtækja sem skipuleggja og selja ferðir í þjóðgarðinum sem kveða á um einstaklingsgjald (hausagjald) skal vera allt að 500 kr. á hvern einstakling.
Ef leyfisskylt verkefni hefur beina skírskotun til meginmarkmiða þjóðgarðsins er heimilt að ákveða lægra leyfisgjald.
Um gjöld vegna umfangsmeira eftirlits með skipulögðum viðburðum, rannsóknum og verkefnum sem kalla á aðstöðu, mannafla eða meðferð tækja fer samkvæmt skilmálum leyfisveitingar, skilyrðum þjóðgarðsvarðar og útreikningi á grundvelli 9. gr. reglugerðar þessarar.
9. gr. Útseld sérfræðivinna.
Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald samkvæmt reglugerð þessari sem nemur 20.800 kr. á hverja klukkustund fyrir sérfræðivinnu við verkefni og þjónustu sem stofnuninni eru falin í lögum og reglugerðum og sem heimilt er að taka gjald fyrir eða samið er um í samningi. Gjaldið er innheimt af þeim aðila sem óskar eftir að vinnan sé framkvæmd eða ákveðið er á grundvelli samnings/leyfisveitingar. Heimilt er að veita afslátt af gjaldinu þegar rökstudd ástæða er til.
10. gr. Ferða- og uppihaldskostnaður.
Náttúruverndarstofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað sem til fellur við vinnu starfsmanna í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins eða eftir því sem ákveðið er á grundvelli samnings/leyfisveitingar.
11. gr. Gildistaka, lagastoð og birting.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, nr. 324/2025.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 6. mars 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild — Útgáfudagur: 20. mars 2026