Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

14. júlí 2025

Útgáfudagur

21. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 47/2025

14. júlí 2025

LÖG

um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Á eftir 1. gr. laganna kemur ný grein, 1. gr. a, sem orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi.

Mat á raforkuöryggi skal byggt á eftirfarandi viðmiðum til lengri og skemmri tíma:

  1. Langtímaframboði orkukosta.
  2. Að framleiðslu- og flutningsgeta fullnægi áætlaðri aukinni eftirspurn til næstu tveggja til fimm ára.
  3. Framleiðsluöryggi til eins árs.
  4. Rauntímaöryggi, þ.e. að sú framleiðslu- og flutningsgeta sem er þegar til staðar nýtist ávallt til að anna rauntímaeftirspurn.

Umhverfis- og orkustofnun skal leggja mat á raforkuöryggi skv. 1. mgr. í samvinnu við flutningsfyrirtækið út frá áætlaðri þróun á framleiðslugetu og eftirspurn. Umhverfis- og orkustofnun skal ársfjórðungslega birta mat á stöðu raforkuöryggis.

Nánari reglur um framkvæmd mats á raforkuöryggi skulu settar í reglugerð. Í reglugerð skal m.a. nánar kveðið á um framkvæmd matsins, birtingu og hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar og flutningsfyrirtækisins auk skila á gögnum, tegundar þeirra, gæða og skilafrests. Þá skal í reglugerð kveðið á um útfærslu viðmiða skv. 1. mgr. og skilgreiningu öryggismarka. Í reglugerð skal einnig skilgreina grunnkröfur sem gerðar eru til raforku- og aflspáa sem liggja matinu til grundvallar.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. Á eftir 8. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Markaðsaðili: Hver sá einstaklingur eða lögaðili sem stundar viðskipti með heildsöluorkuafurð í atvinnuskyni eða annast slík viðskipti í umboði annars.
  2. Á eftir orðinu „raforku“ í 18. tölul. kemur: á viðráðanlegu verði.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „vinnslufyrirtæki“ í 1. tölul. 4. mgr. kemur: markaðsaðila.
  2. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

    Flutningsfyrirtækið skal við kerfisstjórnun leita tilboða eða sjá til þess að tilboða sé leitað um breytingu á notkun miðað við aðstæður í raforkukerfinu. Slíkar ráðstafanir skulu til þess fallnar að stuðla að afhendingaröryggi og hagkvæmni í raforkukerfinu.

  3. 9. mgr. orðast svo:

    Ef ófyrirséð og/eða óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn ber flutningsfyrirtækinu að grípa til skömmtunar raforku til dreifiveitna og notenda. Við skömmtun skulu dreifiveitur njóta forgangs að því marki sem nauðsynlegt er svo að þær geti sinnt forgangsröðun skv. 7. mgr. 16. gr. Við skömmtun skal að öðru leyti gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skulu útfærð í reglugerð.

4. gr.

7. mgr. 16. gr. laganna orðast svo:

Ef ófyrirséð og/eða óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn á dreifiveitusvæði og önnur úrræði duga ekki til ber viðkomandi dreifiveitu að grípa til skömmtunar raforku til notenda. Við skömmtun skulu njóta forgangs heimilisnotendur og mikilvægir samfélagsinnviðir. Við skömmtun skal að öðru leyti gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skulu útfærð í reglugerð.

5. gr.

Í stað tilvísunarinnar „19. tölul.“ í 18. gr. b laganna kemur: 20. tölul.

6. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 14. júlí 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L.S.)

Jóhann Páll Jóhannsson.

A deild — Útgáfudagur: 21. júlí 2025

Tengd mál