Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Málaflokkur
Menntamál, Grunnskólar
Undirritunardagur
30. júlí 2026
Útgáfudagur
6. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 878/2026
30. júlí 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu reglna um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla.
1. gr.
Með vísan til 3. mgr. 20. gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, nr. 585/2010, hefur mennta- og barnamálaráðherra 30. júlí 2026 staðfest reglur um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla sem er sérúrræði innan grunnskóla, sbr. 42. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008. Reglurnar eru birtar sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Reglurnar voru samþykktar á fundi bæjarráðs Garðabæjar hinn 21. júlí 2026.
2. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 30. júlí 2026.
Inga Sæland.
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 6. ágúst 2026
REGLUR
um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla.
1. gr. Gildissvið og markmið.
Reglur þessar eru settar um innritun og útskrift nemenda í Þorláksskóla sem er sérhæft skólaúrræði innan grunnskóla, sbr. 42. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008.
Markmið reglnanna er að tryggja jafnræði við umfjöllun umsókna og vandaða stjórnsýslu við afgreiðslu þeirra.
2. gr. Innritun í sérskóla fyrir einhverfa nemendur.
Þorláksskóli er sérskóli fyrir nemendur í 1.–10. bekk og er ætlaður einhverfum börnum með verulegar, viðvarandi og fjölþættar stuðningsþarfir, þar á meðal einhverf börn með þroskahömlun sem þarfnast einstaklingsmiðaðrar kennslu, sbr. 2. gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, nr. 585/2010.
Sérstaklega er litið til einhverfra barna sem:
þurfa sérhæft námsumhverfi umfram það sem almennt skólaúrræði getur veitt,
þurfa verulegan stuðning í daglegu starfi og aðlögun,
og/eða þurfa umtalsverðan stuðning í tjáskiptum.
3. gr. Umsókn.
Foreldrar, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, geta sótt um skólavist fyrir barn sitt, telji þeir, skólastjórnendur eða sérfræðingar að barnið fái ekki notið kennslu í almennum grunnskóla.
Nemendur með lögheimili í Garðabæ eru í forgangi umsókna um skólavist. Ef nemandi á lögheimili í öðru sveitarfélagi þarf að fylgja með afrit af samþykki/staðfestingu lögheimilissveitarfélags.
Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans, www.thorlaksskoli.is. Á heimasíðu skólans koma fram upplýsingar um starfsemi skólans, nánari leiðbeiningar um umsóknarferlið og fylgigögn.
Umsóknarfrestur um skólavist í Þorláksskóla er frá 1. janúar til 1. mars ár hvert vegna komandi skólaárs.
4. gr. Mat á umsóknum.
Fagráð tekur umsóknir um skólavist til umfjöllunar og gerir tillögur til skólastjóra um afgreiðslu þeirra. Fagráðið er skipað verkefnastjórum skólaþjónustu leik- og grunnskóla í Garðabæ og deildarstjóra málefna fatlaðra í Garðabæ og skal vinna náið með skólastjóra Þorláksskóla við tillögugerð.
Við mat á umsóknum skal tekið mið af:
- Fyrirliggjandi greiningu á þroskaröskun og fötlun nemandans frá viðurkenndum greiningaraðilum.
- Mati á stuðningsþörf (SIS-C) frá Ráðgjafar- og greiningarstöð.
- Mati á náms- og félagslegri stöðu nemandans og líðan samkvæmt þeim leik-/grunnskóla sem nemandi kemur frá.
- Óskum forsjáraðila og nemanda að teknu tilliti til aldurs og þroska.
- Mati á heildrænni stuðningsþörf sem kemur fram í þjónustuáætlun eða stuðningsáætlun og réttindum í samræmi við lög um grunnskóla, nr. 91/2008, reglugerð um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, nr. 585/2010, og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Við mat á umsóknum um skólavist skal litið til 1. mgr. 20. gr. reglugerðar nr. 585/2010 og heildrænnar þjónustuþarfar nemanda. Áhersla skal lögð á samvinnu við foreldra og nemanda að teknu tilliti til aldurs hans og þroska, sbr. 12. gr. laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 19/2013. Forsjáraðilum og eftir atvikum barni skulu kynntar niðurstöður mats og gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum áður en fagráð gerir tillögu til skólastjóra um afgreiðslu umsóknar og áður en til innritunar kemur.
Tillögur fagráðs um innritun nemenda vegna komandi skólaárs skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl ár hvert.
5. gr. Afgreiðsla umsókna.
Á grundvelli tillagna fagráðs skólans tekur skólastjóri Þorláksskóla ákvörðun um samþykki eða synjun umsóknar og tilkynnir forsjáraðilum um niðurstöðuna skriflega.
Sé umsókn um skólavist samþykkt, skal skólinn undirbúa móttöku nemanda samkvæmt móttökuáætlun skv. 2. mgr. 16. gr. laga um grunnskóla, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 585/2010. Móttökuáætlunin er fjölþætt áætlun þar sem m.a. er gerð grein fyrir samstarfi innan skólans, skipulagi kennslunnar, aðbúnaði, aðstöðu, skipulagi einstaklingsnámskrár, kennsluháttum og námsmati, hlutverki umsjónarkennara, sérkennara og annarra fagaðila og samstarfi við forsjáraðila. Einnig skal greina frá áformum skólans um stuðning við nemendur til félagslegrar þátttöku, virkni í skólasamfélaginu og samstarfi við aðra aðila utan skólans. Námskrá skal endurskoðuð reglulega í samstarfi við forsjáraðila og að höfðu samráði við nemendur eftir því sem við verður komið.
Í skólabyrjun funda forsjáraðilar og nemandi með umsjónarkennara og taka í samráði ákvörðun um fyrstu skrefin á skólagöngunni. Gerð einstaklingsnámskrár hefst á fyrstu dögum skólagöngunnar og skal henni lokið eigi síðar en sex vikum frá skólabyrjun.
Ákvörðun um synjun umsóknar um skólavist verður ekki tekin nema á grundvelli metinna sérþarfa viðkomandi barns og að teknu tilliti til afstöðu forsjáraðila og nemanda til málsins, eftir því sem aldur og þroski barns leyfir, og álitsgerða sérfræðinga, sbr. 2. mgr. 21. gr. reglugerðar nr. 585/2010. Ef skólinn er orðinn fullsetinn vegna komandi skólaárs verður til biðlisti sem raðast samkvæmt eftirfarandi:
- Gildar umsóknir sem berast fyrir 1. mars ár hvert.
- Nemendur sem uppfylla skilyrði um inntöku, sbr. 4. gr. um mat á umsóknum hér að ofan, tímaröð umsóknar.
- Nemendur með lögheimili í Garðabæ njóta forgangs en nemendur með lögheimili í öðru sveitarfélagi eru teknir inn í tímaröð miðað við þann tíma sem sveitarfélag hefur samþykkt skólavist utan sveitarfélags.
- Tímaröð umsókna, dagsetning tölvupósts eða póststimpill gildir.
Sé ekki unnt að verða við umsókn tilkynnir skólastjóri um fyrirhugaða synjun í bréfi til forsjáraðila og skal ítarlegur rökstuðningur fylgja. Gefa skal forsjáraðilum og barni eftir því sem aldur og þroski þess leyfir, kost á að tjá sig um fyrirhugaða synjun áður en endanleg ákvörðun er tekin. Verði umsókn synjað eftir mat á athugasemdum frá forsjáraðilum og nemanda skal skólastjóri tilkynna forsjáraðilum það skriflega og upplýsa þá um kærurétt skv. 47. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008. Sé umsókn synjað vegna plássleysis skal forsjáraðilum gefinn kostur á að halda umsókn inni til umfjöllunar síðar. Umsókn raðast á biðlista vegna komandi skólaárs og er tekin til umfjöllunar ef pláss losnar í skólanum. Fyrir skólaárið þar á eftir þarf að sækja um að nýju.
Við meðferð og úrlausn umsókna skal gæta að ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
6. gr. Útskrift úr Þorláksskóla í almennt skólastarf grunnskóla.
Telji forsjáraðilar, fagfólk Þorláksskóla og nemandi eftir því sem aldur og þroski leyfir, að nemandi fái betur notið náms og kennslu við hæfi í almennu skólastarfi skal samkvæmt lögum nr. 91/2008, lögum nr. 38/2018 og samkvæmt lögum nr. 86/2021, ef við á, meta í samvinnu við starfsfólk Þorláksskóla, skólaþjónustu Garðabæjar og ráðgjafa fatlaðra barna í félagsþjónustu Garðabæjar hvort nemandinn skuli útskrifast úr Þorláksskóla í almennt skólastarf með stuðningi. Skólavist í Þorláksskóla er val forsjáraðila svo forsjáraðilar geta ávallt óskað eftir útskrift úr skólanum.
Nýtist nemandanum almenn kennsla í almennu námsúrræði meirihluta skólagöngunnar skal meta í samvinnu við forsjáraðila, nemanda eftir því sem aldur hans og þroski leyfir, starfsfólk Þorláksskóla, skólaþjónustu Garðabæjar og ráðgjafa fatlaðra barna í félagsþjónustu Garðabæjar hvort nemandinn skuli útskrifast úr Þorláksskóla í almennt skólastarf með stuðningi. Slík ákvörðun skal tekin fyrir 1. mars ár hvert.
Ef ákvörðun er tekin um að nemandi færist yfir í almennt skólastarf meðan á grunnskólagöngu stendur skal gera áætlun um lok skólavistar í Þorláksskóla og aðlögun í almennt skólastarf. Að mótun og gerð áætlunarinnar koma forsjáraðilar, nemandi eftir því sem aldur og þroski hans leyfir, fulltrúi skólaþjónustu Garðabæjar, ráðgjafi fatlaðra barna í félagsþjónustu Garðabæjar, hlutaðeigandi starfsfólk Þorláksskóla og móttökuskóla, og aðrir fagaðilar sem koma að námi og skólagöngu nemandans. Í áætluninni skal taka tillit til heildaraðstæðna nemandans og skulu m.a. koma fram upplýsingar um náms- og félagslega stöðu nemandans, einstaklingsnámskrá, virkni og líðan. Í henni skal einnig vera áætlun um aðlögun í almennt skólastarf og eftirfylgd með nemandanum frá Þorláksskóla.
Verði ágreiningur um útskrift nemanda úr Þorláksskóla í almennt skólastarf tekur skólastjóri viðtökuskóla endanlega ákvörðun, sbr. 21. gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskólum, nr. 585/2010. Skal ákvörðun tekin með hliðsjón af áliti nemanda, forsjáraðila og fagfólks með heildarhagsmuni barnsins að leiðarljósi. Ávallt skal reyna til þrautar að ná samkomulagi milli forsjáraðila, skóla og fagfólks. Forsjáraðilum nemanda skal gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum og andmælum áður en ákvörðun er tekin um að flytja nemanda yfir í almennt skólastarf. Sé ákvörðun tekin um að flytja nemanda yfir í almennt skólastarf skal skólastjóri tilkynna það í bréfi til forsjáraðila. Ákvörðun skal vera rökstudd og forsjáraðilar upplýstir um kærurétt skv. 47. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008.
Ef þjónusta við nemanda er samþætt á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna skal samvinna aðila skv. 1.–3. mgr. einnig vera við tengilið eða málstjóra.
7. gr. Útskrift að loknu grunnskólanámi.
Hefja skal gerð tilfærsluáætlunar um skólaskil ekki síðar en í 9. bekk.
Að mótun og gerð áætlunarinnar koma forsjáraðilar, nemandi eftir því sem aldur hans og þroski leyfir, fulltrúi skólaþjónustu Garðabæjar, ráðgjafi fatlaðra barna í félagsþjónustu Garðabæjar, hlutaðeigandi starfsfólk Þorláksskóla og móttökuskóla, og aðrir fagaðilar sem koma að námi og skólagöngu nemandans. Í áætluninni skal taka tillit til heildaraðstæðna nemandans og skulu koma fram upplýsingar um skólagöngu hans, náms- og félagslega stöðu, einstaklingsnámskrá, áform hans um frekara nám og áhugamál. Í áætluninni skal koma fram hvernig vali á framhaldsnámi/skóla er háttað, kynningum á þeim möguleikum sem fyrir hendi eru og aðlögun í nýjan skóla.
8. gr. Útskrift vegna flutnings úr sveitarfélagi.
Flytji nemandi úr Garðabæ skal gera áætlun um lok skólavistar í Þorláksskóla og aðlögun í skólaúrræðið sem tekur við.
Að mótun og gerð áætlunar koma forsjáraðilar, nemandi eftir því sem aldur hans og þroski leyfir, starfsfólk Þorláksskóla, nýr umsjónarkennari og aðrir fagaðilar sem koma að námi og skólagöngu nemandans, og eftir atvikum stuðningsteymi. Í áætluninni skal taka tillit til heildaraðstæðna nemandans og skulu m.a. koma fram upplýsingar um náms- og félagslega stöðu nemandans, einstaklingsnámskrá, virkni og líðan.
Haldi nemandi áfram skólagöngu í Þorláksskóla þrátt fyrir flutning úr Garðabæ skal samþykki nýs lögheimilissveitarfélags liggja fyrir.
9. gr. Samþykkt og gildistaka.
Reglur þessar eru settar á grundvelli 20. gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, nr. 585/2010.
Reglurnar taka gildi við staðfestingu mennta- og barnamálaráðherra.
Samþykkt af bæjarráði Garðabæjar, 21. júlí 2026.