Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli

Undirritunardagur

23. mars 2026

Útgáfudagur

10. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 348/2026

23. mars 2026

REGLUGERÐ

um (25.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 94. og 95. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1102 frá 3. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar líffræðileg efni sem eru ólík íðefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 479.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1908 frá 24. september 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins flúralaners með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 271/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 484.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 10. apríl 2026

Tengd mál