Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Strandabyggð
Málaflokkur
Vatnamál, Strandasýsla
Undirritunardagur
17. desember 2025
Útgáfudagur
7. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1621/2025
17. desember 2025
GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Strandabyggðar.
1. gr. Gjaldskylda.
Strandabyggð innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. gr. laganna.
2. gr. Ráðstöfun gjalda.
Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða. Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t. fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.
3. gr. Tengigjald vatnsveitu.
Tengigjöld skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við vatnsveitu í eigu Strandabyggðar og skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir:
32 mm, 242.045 kr.
40 mm, 263.030 kr.
Starfsmenn áhaldahúss sjá um að leggja og tengja heimæðar, setja inntakskrana utanhúss og krana, síu og einstefnuloka innanhúss. Miðað er við að ídráttarrör hafi verið lagt frá inntaksstað mannvirkis að krana í lóð í frostfríu dýpi samkvæmt fyrirmælum verkstjóra áhaldahúss Strandabyggðar og fjarlægð frá stofnæð sé ekki meiri en 15 metrar.
Við endurnýjun eldri vatnsinntaka skal farið eftir framangreindum reglum en greitt verði eftir umfangi verks.
4. gr. Vatnsgjald.
Stofn til álagningar vatnsgjalds skal vera 0,30% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94/1976. Stofn til álagningar vatnsgjalds er ekki lægri en 26.390 kr. og ekki hærri en 35.360 kr. Vatnsgjald er ekki lægra en 41.435 kr. og ekki hærra en 55.530 kr. af íbúðarhúsnæði. Vatnsgjald fer þó ekki yfir 0,5% af fasteignamati húss og lóðar.
5. gr. Aukavatnsgjald.
Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota kalt vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald. Aukavatnsgjald er innheimt eftir á, samkvæmt mældri notkun með rúmmetramæli sem vatnsveita leggur til. Þar sem ekki eru mælar er stjórn vatnsveitu heimilt að áætla notkun.
Aukavatnsgjald fyrir hvern m³ að 100.000 m³ er 35 kr.
Afsláttur til stórnotenda frá 100.000 m³ að 250.000 m³ er 20%.
Afsláttur til stórnotenda frá 250.000 m³ er 40%.
Vatnsgjald vegna beitingagáma, 20 feta, er 13.960 kr.
6. gr. Mælaleiga.
Greiðendur aukavatnsgjalds skulu árlega greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir:
| Stærð mælis | Mælaleiga á ári |
| 25 - 31 mm | 8.635 kr. |
| 32 - 39 mm | 12.035 kr. |
| 40 - 49 mm | 19.035 kr. |
| 50 - 74 mm | 29.530 kr. |
| 75 mm og stærri | 53.400 kr. |
7. gr. Breytingar á gjöldum.
Ákvörðun um vatnsgjald samkvæmt 2. gr. er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2021=100 og breytast samkvæmt henni 1. nóvember ár hvert. Gjöld vatnsveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.
8. gr. Ábyrgð á greiðslu gjalda.
Vatnsgjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Vatnsgjald nýtur aðfararheimildar skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 32/2004, sbr. 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför, nr. 90/1989, og má gera aðför í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Vatnsgjald nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Notkunargjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.
9. gr. Gildistaka
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025 og staðfestist hér með samkvæmt 10. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.
Gjaldskrá þessi tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1741/2024.
Strandabyggð, 17. desember 2025.
Þorgeir Pálsson oddviti.
B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026