Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. júní 2025

Útgáfudagur

27. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 697/2025

12. júní 2025

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað „BS-prófs“ í f-lið 4. mgr. 1. gr. reglnanna kemur: BS-gráðu.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:

  1. Í stað „á BS-prófi“ í a-lið 5. mgr. kemur: í BS-námi.
  2. Í stað „BS-prófs“ í c-lið 5. mgr. kemur: BS-gráðu.

3. gr.

Í stað „BS-prófs“ í 4. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: BS-gráðu.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:

  1. Í stað „MS-prófs“ í 1. mgr. kemur: MS-gráðu.
  2. Í stað „MS-prófs“ í 3. mgr. kemur: MS-gráðu

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. a reglnanna:

  1. Í stað „MS-prófs“ í 1. mgr. kemur: MS-gráðu.
  2. Í stað „MS-prófi“ í a-lið 1. mgr. kemur: MS-námi.
  3. Í stað orðanna „loknu BS-prófi“ í b-lið 1. mgr. koma orðin: lokinni BS-gráðu.

6. gr.

Í stað orðsins „meistaraprófs“ í 1. málsl. 9. gr. a reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.

7. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við 5. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 12. júní 2025.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025

Tengd mál