Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar, Sjóðir og stofnanir, Umhverfismál, Félagsmál, Háskólar, Fjármálastarfsemi, Ökutæki, Kirkjumál, Aldraðir, Lífeyrissjóðir, Almannavarnir, Fjárlög - ríkisreikningur, Eldsneyti, Fjölmiðlar, Umbúðir, Losunarleyfi, Lögræði

Undirritunardagur

24. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 99/2025

24. desember 2025

LÖG

um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIBreyting á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:

  1. Í stað „150,85 kr.“ í 1. tölul. kemur: 156,45 kr.
  2. Í stað „137,40 kr.“ í 2. tölul. kemur: 142,50 kr.
  3. Í stað „185,95 kr.“ í 3. tölul. kemur: 192,85 kr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:

  1. Í stað „619,35 kr.“ í 1. tölul. kemur: 642,25 kr.
  2. Í stað „34,45 kr.“ í 2. tölul. kemur: 35,70 kr.
  3. Í stað „34,45 kr.“ í 3. tölul. kemur: 35,70 kr.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:

  1. Í stað „777,90 kr.“ í 1. tölul. kemur: 806,70 kr.
  2. Í stað „43,15 kr.“ í 2. tölul. kemur: 44,75 kr.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. d laganna:

  1. Í stað „8 kr.“ í 1. tölul. kemur: 8,30 kr.
  2. Í stað „12 kr.“ í 2. tölul. kemur: 12,45 kr.
  3. Í stað „15 kr.“ í 3. tölul. kemur: 15,55 kr.
  4. Í stað „20 kr.“ í 4. tölul. kemur: 20,75 kr.
  5. Í stað „40 kr.“ í 5. og 6. tölul. kemur: 41,50 kr.
  6. Í stað „60 kr.“ í 7. tölul. kemur: 62,20 kr.

II. KAFLIBreyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. Orðin „og 5.“ í 1. og 3. mgr. falla brott.
  2. Í stað „65%“ í 1. mgr. kemur: 70%.
  3. Í stað „69 grömm“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 15 grömm.
  4. Í stað „0,28%“ og „85 grömm“ í 2. og 3. tölul. 1. mgr. kemur: 0,34%; og: 30 grömm.
  5. 2. mgr. fellur brott.
  6. Í stað „5%“ og „65%“ í 3. mgr. kemur: 10%; og: 70%.

6. gr.

Á eftir 3. gr. laganna kemur ný grein, 3. gr. a, svohljóðandi:

Af sérsmíðuðum keppnisbifreiðum og keppnisbifhjólum skal vörugjald vera 500.000 kr. lægra en útreikningur skv. 1. mgr. 3. gr. eða b-lið 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. segir til um, þó aldrei lægra en 0 kr., að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Ökutækið sé skráð sem slíkt og einungis notað í skipulögðum keppnum og æfingum á vegum landssamtaka akstursíþróttafélaga sem viðurkennd eru af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, svo og til aksturs til og frá slíkum atburðum.
  2. Við umsókn um lækkun vörugjalds liggi fyrir vottorð framleiðanda, ásamt rökstuddri yfirlýsingu viðkomandi landssamtaka akstursíþróttafélaga, um að um sé að ræða sérsmíðað ökutæki til keppni í viðkomandi grein.
  3. Skráningarmerki ökutækjanna skulu auðkennd sérstaklega.

Lækkun vörugjalds samkvæmt ákvæði þessu er bundin því skilyrði að ökutæki uppfylli skilyrði 1. tölul. 1. mgr. í 10 ár frá skráningu. Kvöð þess efnis skal skráð á ökutækið í ökutækjaskrá. Verði ökutækið selt til annarra nota, því breytt eða það skráð á almenn skráningarmerki áður en 10 ár eru liðin frá skráningu ber eiganda að endurgreiða eftirgefna fjárhæð til ríkissjóðs. Fjárhæð endurgreiðslu skal lækka um 1/ 120 fyrir hvern byrjaðan mánuð sem liðinn er frá nýskráningu.

Ráðherra setur nánari reglur í reglugerð um gerð og útbúnað ökutækja samkvæmt ákvæði þessu, svo og til hvaða atburða akstursheimildin taki. Sé ökutæki notað til annars en kveðið er á um í 1. tölul. 1. mgr., án þess að uppgjör samkvæmt ákvæði þessu hafi farið fram, skulu tollyfirvöld leggja á skráðan eiganda þess fullt vörugjald skv. 1. mgr. 3. gr. eða b-lið 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. eins og það hefði verið við upphaflega álagningu að viðbættu 50% álagi.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:

  1. B-liður 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Vélknúin ökutæki í ökutækjaflokki N3, sem eru ætluð til vöruflutninga, eru yfir 12 tonn að heildarþyngd og falla undir vörulið 8704 í tollskrá.
  2. H-liður 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Dráttarvélar í ökutækjaflokki T1, T2 og T3 sem eru skráðar sem dráttarvélar í ökutækjaskrá, sbr. 10. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og falla undir vörulið 8701 í tollskrá.
  3. L-liður 1. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  4. P-liður 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Vélknúin ökutæki, sbr. 43. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, sem eru eingöngu knúin metani, rafmagni eða vetni.
  5. R-liður 1. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  6. Í stað „13%“ í 2. tölul. 1. mgr. og „30%“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 20%; og: 40%.
  7. F-liður 2. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  8. Í stað orðanna „undir 5 tonnum“ í g-lið 2. tölul. 1. mgr. kemur: 5 tonn eða minna.
  9. I-liður 2. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  10. Við 2. tölul. 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Vélknúin ökutæki sem eru ætluð til vöruflutninga, eru yfir 5 tonn en 12 tonn eða minna að heildarþyngd og falla undir vörulið 8704 í tollskrá.
  11. 2. mgr. fellur brott.

8. gr.

5. gr. laganna fellur brott.

9. gr.

Í stað „34,55 kr.“ í 14. gr. laganna kemur: 35,85 kr.

10. gr.

Í stað „55,65 kr.“ og „58,95 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: 57,70 kr.; og: 61,15 kr.

III. KAFLIBreyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004.

11. gr.

Í stað „77,30 kr.“ í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur: 80,15 kr.

12. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:

a. 4. mgr. orðast svo:

Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:

Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetragjald, kr. Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg Kílómetragjald, kr.
10.000–11.000 0,41 21.001–22.000 10,00
11.001–12.000 1,29 22.001–23.000 10,90
12.001–13.000 2,16 23.001–24.000 11,75
13.001–14.000 3,06 24.001–25.000 12,64
14.001–15.000 3,92 25.001–26.000 13,49
15.001–16.000 4,80 26.001–27.000 14,38
16.001–17.000 5,66 27.001–28.000 15,28
17.001–18.000 6,53 28.001–29.000 16,15
18.001–19.000 7,40 29.001–30.000 17,00
19.001–20.000 8,25 30.001–31.000 17,87
20.001–21.000 9,17 31.001 og yfir 18,73

b. 6. mgr. orðast svo:

Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum ökutækjum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:

Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetragjald, kr. Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg Kílómetragjald, kr.
5.000–6.000 12,29 18.001–19.000 32,45
6.001–7.000 13,29 19.001–20.000 33,92
7.001–8.000 14,32 20.001–21.000 35,40
8.001–9.000 15,33 21.001–22.000 36,89
9.001–10.000 16,32 22.001–23.000 38,32
10.001–11.000 17,77 23.001–24.000 39,79
11.001–12.000 19,67 24.001–25.000 41,28
12.001–13.000 21,57 25.001–26.000 42,75
13.001–14.000 23,44 26.001–27.000 44,21
14.001–15.000 25,34 27.001–28.000 45,69
15.001–16.000 27,20 28.001–29.000 47,17
16.001–17.000 29,09 29.001–30.000 48,64
17.001–18.000 30,99 30.001–31.000 50,07
    31.001 og yfir 51,56

IV. KAFLIBreyting á lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku-
og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023
.

13. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 6. gr. laganna:

  1. Í stað „6 kr.“ í 1. tölul. kemur: 6,20 kr.
  2. Í stað „2 kr.“ í 2. tölul. kemur: 2,05 kr.

14. gr.

Í stað „10.000 kr.“ og „5.000 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: 10.370 kr.; og: 5.185 kr.

V. KAFLIBreyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988.

15. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. Í stað „20.500 kr.“ og „181 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 188 kr.
  2. Í stað „20.500 kr.“ og „149 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 154 kr.
  3. Í stað „20.500 kr.“ og „149 kr.“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 154 kr.
  4. Í stað „71.160 kr.“, „2,99 kr.“ og „111.340 kr.“ í 4. mgr. kemur: 73.795 kr.; 3,10 kr.; og: 115.460 kr.

VI. KAFLIBreyting á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert
eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999
.

16. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:

  1. Í stað „4.770.000 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
  2. Í stað „0,03250%“ í a-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,03140%.
  3. Í stað „4.770.000 kr.“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
  4. Í stað „1.060.000 kr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  5. Í stað „2.650.000 kr.“ í 4. tölul. 1. mgr. kemur: 2.756.000 kr.
  6. Í stað „2.650.000 kr.“ í 6. tölul. 1. mgr. kemur: 2.756.000 kr.
  7. Í stað „4.770.000 kr.“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
  8. Í stað „4.770.000 kr.“ í 8. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
  9. Í stað „4.780.000 kr.“, „6.360.000 kr.“, „10.844.000 kr.“, „13.992.000 kr.“ og „17.490.000 kr.“ í 9. tölul. 1. mgr. kemur: 4.971.000 kr.; 6.614.000 kr.; 11.278.000 kr.; 14.552.000 kr.; og: 18.190.000 kr.
  10. Í stað „4.770.000 kr.“ í 12. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
  11. Í stað „1.060.000 kr.“ í 13. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  12. Í stað „1.060.000 kr.“ í 14. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  13. Í stað „1.590.000 kr.“ í 15. tölul. 1. mgr. kemur: 1.654.000 kr.
  14. Í stað „1.060.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  15. Í stað „2.157.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 2.243.000 kr.
  16. Í stað „567.000 kr.“, „1.510.000 kr.“, „4.530.000 kr.“, „8.305.000 kr.“ og „11.955.000 kr.“ í 6. mgr. kemur: 590.000 kr.; 1.570.000 kr.; 4.711.000 kr.; 8.637.000 kr.; og: 12.433.000 kr.
  17. Í stað „189.000 kr.“, „317.000 kr.“, „697.000 kr.“, „1.134.000 kr.“, „1.638.000 kr.“ og „1.888.000 kr.“ í 7. mgr. kemur: 197.000 kr.; 330.000 kr.; 725.000 kr.; 1.179.000 kr.; 1.704.000 kr.; og: 1.964.000 kr.
  18. Í stað „3.300.000 kr.“, „1.650.000 kr.“ og „550.000 kr.“ í 8. mgr. kemur: 3.432.000 kr.; 1.716.000 kr.; og: 572.000 kr.
  19. Í stað „1.060.000 kr.“ í 9. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  20. Í stað „1.060.000 kr.“ í 10. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  21. Í stað „1.060.000 kr.“ í 11. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
  22. Í stað „0,00174%“ í 13. mgr. kemur: 0,00180%.
  23. Í stað „0,00174%“ og „250.000 kr.“ í 14. mgr. kemur: 0,00180%; og: 500.000 kr.
  24. Í stað „514.000 kr.“ í 15. mgr. kemur: 535.000 kr.
  25. Í stað „514.000 kr.“ í 16. mgr. kemur: 535.000 kr.
  26. Í stað „770.000 kr.“ tvívegis í 17. mgr. kemur: 801.000 kr.

17. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:

  1. Í stað „3.200.000 kr.“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 3.320.000 kr.
  2. Í stað „1.280.000 kr.“ í 2. tölul. 2. mgr. kemur: 1.320.000 kr.
  3. Í stað „330.000 kr.“ í 3. tölul. 2. mgr. kemur: 340.000 kr.
  4. Í stað „330.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 340.000 kr.
  5. 4. mgr. orðast svo:
    Fastagjald fyrir mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í eftirlitsskyldum aðila er eftirfarandi:
    1. Í viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki eða vátryggingafélagi 1.860.000 kr.
    2. Í öðrum eftirlitsskyldum aðila 900.000 kr.
  6. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Eftirlitsskyldur aðili skal greiða eftirfarandi fastagjald fyrir mat á hæfi framkvæmdastjóra eða stjórnarmanns:
    1. Hæfismat á grundvelli skriflegra gagna 220.000 kr.
    2. Munnlegt hæfismat 340.000 kr.
  7. 6. mgr. orðast svo:
    Gjaldskrá fyrir eftirlit skv. 1. mgr. og þjónustu skv. 6. mgr. skal birt í Stjórnartíðindum.

VII. KAFLIBreyting á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur
umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011
.

18. gr.

Í stað „0,007%“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 0,0065%.

VIII. KAFLIBreyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

19. gr.

Í stað „14.093 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: 14.614 kr.

20. gr.

Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2025 og 2026.

IX. KAFLIBreyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997
.

21. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum:

  1. Í stað orðanna „1. janúar 2025 til og með 31. ágúst 2025“ kemur: 1. september 2025 til og með 31. desember 2026.
  2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Með almennum hækkunum er átt við 5,8% hækkun 1. september 2025 og 5,2% hækkun 1. janúar 2026.

22. gr.

Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum kemur: 2025 og 2026.

X. KAFLIBreyting á lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987.

23. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga vera 1.221 kr. á mánuði árið 2026 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.

XI. KAFLIBreyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.

24. gr.

Við 4. mgr. 20. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárhæð losunargjalds skv. 2. mgr. vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2026 skal vera 10.123 kr. fyrir hvert tonn.

XII. KAFLIBreyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013.

25. gr.

Í stað „21.400 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 22.200 kr.

XIII. KAFLIBreyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.

26. gr.

Á eftir 23. gr. a laganna kemur ný grein, 23. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Markaðsgjald.

Markaðsgjald, 0,05%, skal lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla. Um álagningu og innheimtu markaðsgjalds fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga þessara. Markaðsgjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn þess myndaðist.

27. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða III í lögunum:

  1. Í stað orðanna „árinu 2024“ í 1. mgr. kemur: árunum 2024 og 2025.
  2. Í stað orðanna „árinu 2025“ og „tveimur“ í 2. mgr. kemur: árunum 2025 og 2026; og: þremur.

28. gr.

Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2025 og 2026.

XIV. KAFLIBreyting á lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu
og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012
.

29. gr.

Í stað „2025“ í ákvæði til bráðabirgða III í lögunum kemur: 2026.

XV. KAFLIBreyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.

30. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 66. gr. laganna:

  1. 4. tölul. fellur brott.
  2. Í stað „1.–4. tölul.“ í 1. málsl. 5. tölul. kemur: 1.–3. tölul.

31. gr.

4. málsl. 2. mgr. A-liðar 67. gr. laganna fellur brott.

32. gr.

B-liður 68. gr. laganna fellur brott.

33. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XLI í lögunum:

  1. Í stað „og 2025“ í 1.–5. mgr. kemur: 2025 og 2026.
  2. Í stað „og 2024“ í 1.–5. mgr. kemur: 2024 og 2025.

34. gr.

Í stað „2025“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða LXXXII í lögunum kemur: 2026.

XVI. KAFLIBreyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.

35. gr.

2.–4. málsl. 1. mgr. 18. gr. laganna falla brott.

XVII. KAFLIBreyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.

36. gr.

Í stað „73 kr./kg“ í viðauka IV við lögin kemur hvarvetna: 88 kr./kg.

37. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka VI við lögin:

  1. Tollskrárnúmerið 2903.5100 og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds fellur brott.
  2. Í stað „260 kr./kg“ kemur hvarvetna: 300 kr./kg.

38. gr.

Við viðauka X við lögin bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæðir úrvinnslugjalds:

  1. 2404.1211 208 kr./kg.
  2. 2404.1212 208 kr./kg.
  3. 2404.1221 208 kr./kg.
  4. 2404.1222 208 kr./kg.

39. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XI A við lögin:

  1. Við bætist eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds: 8507. 8020 10 kr./kg.
  2. Eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds fellur brott: 8507. 8010 10 kr./kg.

40. gr.

Við viðauka XV við lögin bætist eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds: 2903.5100 2,5 kr./kg.

41. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XIX við lögin:

  1. Í stað „11 kr./kg“ undir tollskrárnúmerinu 8543.9009 kemur: 24 kr./kg.
  2. Við bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds:
    1. 8543.9003 24 kr./kg.
    2. 8544.4209 24 kr./kg.
    3. 8711.6012 11 kr./kg.
    4. 8711.6015 11 kr./kg.

XVIII. KAFLIBreyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997.

42. gr.

Í stað „2025“ í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum kemur: 2026.

XIX. KAFLIBreyting á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun
af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, nr. 52/1989
.

43. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 1. gr. laganna:

  1. Í stað „19,82 kr.“ í 2. málsl. kemur: 20,73 kr.
  2. Í stað „6,10 kr.“, „0,40 kr.“, „12,30 kr.“, „9,40 kr.“, „4,10 kr.“, „1,60 kr.“ og „0,60 kr.“ í 4. málsl. kemur: 7,00 kr.; 0,60 kr.; 15,00 kr.; 12,00 kr.; 5,50 kr.; 3,00 kr.; og: 2,50 kr.

XX. KAFLIBreyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

44. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:

  1. Í stað „13.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 18.200 kr.
  2. Í stað „12.000 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 16.800 kr.

45. gr.

Í stað „40.000 kr.“ í 2. málsl. og „13.000 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 56.000 kr.; og: 18.200 kr.

46. gr.

6. gr. laganna orðast svo:

Þegar umsókn um leyfi til einkaskipta á dánarbúi er afhent sýslumanni skal um leið greiða 20.300 kr. sem skiptagjald í ríkissjóð.

Þegar umsókn um leyfi til setu í óskiptu búi er afhent sýslumanni skal um leið greiða 11.200 kr. í ríkissjóð.

47. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. Í stað „2.700 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
  2. Í stað orðanna „og löggeymslu“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: löggeymslu, búsetuleyfis og erfðaskiptayfirlýsingar.

48. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:

  1. Í stað „2.700 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
  2. Í stað „5.400 kr.“ í 2. mgr. kemur: 7.500 kr.
  3. Í stað „8.600 kr.“ í 3. mgr. kemur: 12.000 kr.

49. gr.

Í stað „9.700 kr.“ í 12. tölul. 13. gr. laganna kemur: 13.600 kr.

50. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:

  1. 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um borgaralega hjónavígslu 15.400 kr.
  2. 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um lögskilnaðarleyfi 9.100 kr.
  3. 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um leyfi til skilnaðar að borði og sæng 9.100 kr.
  4. 4. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um ættleiðingarleyfi 7.500 kr.
  5. Í stað „2.700 kr.“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
  6. Í stað „2.200 kr.“ í 8. tölul. 1. mgr. kemur: 3.100 kr.
  7. Í stað „2.700 kr.“ í 9. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
  8. Í stað a- og b-liðar 10. tölul. 1. mgr. koma fimm nýir stafliðir, svohljóðandi:
    1. Fyrir umsókn um ríkisborgararétt 60.000 kr.
    2. Fyrir umsókn um ríkisborgararétt fyrir barn 30.000 kr.
    3. Sé sótt um ríkisborgararétt samtímis fyrir fullorðinn einstakling og börn hans skal innheimta eitt gjald 60.000 kr.
    4. Fyrir tilkynningu um ríkisborgararétt 30.000 kr.
    5. Fyrir tilkynningu um ríkisborgararétt fyrir barn 15.000 kr.
  9. 16. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um könnunarvottorð 6.700 kr.
  10. Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Fyrir skipun ráðsmanns, breytingar á störfum hans og við lausn hans frá störfum 21.600 kr.
  11. Í stað „14.000 kr.“ í a-lið 1. tölul. 2. mgr. kemur: 19.000 kr.
  12. Í stað „28.000 kr.“ í b-lið 1. tölul. 2. mgr. kemur: 39.200 kr.
  13. Í stað „7.500 kr.“ í c-lið 1. tölul. 2. mgr. kemur: 10.500 kr.
  14. Í stað „6.000 kr.“ í a-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 7.000 kr.
  15. Í stað „12.000 kr.“ í b-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 14.000 kr.
  16. Í stað „3.000 kr.“ í c-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 3.500 kr.
  17. 6.–9. tölul. 3. mgr. orðast svo:
    1. Fyrir umsókn um dvalarleyfi greiðast eftirfarandi gjöld:
      1. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku 80.000 kr.
      2. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna náms 70.000 kr.
      3. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar 110.000 kr.
      4. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar við handhafa alþjóðlegrar verndar 90.000 kr.
      5. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar barns 60.000 kr.
      6. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar 120.000 kr.
      7. Fyrir umsókn um önnur dvalarleyfi 40.000 kr.
    2. Fyrir umsókn um endurnýjun dvalarleyfis greiðast eftirfarandi gjöld:
      1. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku 80.000 kr.
      2. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna náms 70.000 kr.
      3. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar 60.000 kr.
      4. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar við handhafa alþjóðlegrar verndar 60.000 kr.
      5. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar barns 40.000 kr.
      6. Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar 120.000 kr.
      7. Fyrir umsókn um önnur dvalarleyfi 40.000 kr.
    3. Fyrir umsókn um bráðabirgðadvalarleyfi 40.000 kr.
    4. Fyrir umsókn um ótímabundið dvalarleyfi greiðast eftirfarandi gjöld:
      1. Fyrir fullorðinn einstakling 60.000 kr.
      2. Fyrir barn 30.000 kr.
  18. 10. tölul. 3. mgr. fellur brott.
  19. Við 12. tölul. 3. mgr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Eigi skal þó greiða fyrir dvalarleyfi skv. 66. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sé samningur samkvæmt þeirri grein í gildi og þar kveðið á um undanþágu frá greiðslu.

51. gr.

Í stað „3.200 kr.“ í 14. gr. b laganna kemur: 4.500 kr.

52. gr.

 

Í stað „10.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: 14.000 kr.

53. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir 6. gr. laganna skal greiða 13.000 kr. skiptagjald í ríkissjóð samhliða greiðslu erfðafjárskatts vegna eignaskipta sem hófust fyrir 1. janúar 2026 og er lokið eftir það. Skiptagjald greiðist þó ekki ef arfur rennur að öllu leyti til erfingja sem er undanþeginn skyldu til greiðslu erfðafjárskatts.

XXI. KAFLIBreyting á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008.

54. gr.

Í stað „75.000 kr.“ í a-lið 2. mgr. 24. gr. laganna kemur: 100.000 kr.

XXII. KAFLIBreyting á lögum um gistináttaskatt og innviðagjald, nr. 87/2011.

55. gr.

Í stað „2.500 kr.“ í 2. mgr. 3. gr. a laganna kemur: 1.600 kr.

XXIII. KAFLIBreyting á lögum um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010.

56. gr.

2. og 3. mgr. 5. gr. laganna falla brott.

XXIV. KAFLIBreyting á lögræðislögum, nr. 71/1997.

57. gr.

50. gr. laganna, ásamt fyrirsögn á undan greininni, fellur brott.

58. gr.

Tilvísunin „1. mgr. 50. gr.“ í 1. málsl. 84. gr. laganna fellur brott.

XXV. KAFLIBreyting á lögum um breytingu á ýmsum lögum um skatta
og gjöld o.fl., nr. 102/2023
, sbr. lög nr. 140/2024.

59. gr.

22. gr. laganna fellur brott.

60. gr.

Orðin „og 22. gr. sem öðlast gildi 1. janúar 2026“ í 1. mgr. 36. gr. laganna falla brott.

61. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 32. gr. gildi 1. janúar 2027. Við gildistöku ákvæðisins falla brott ákvæði B-liðar 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Ákvæðið skal þó halda gildi sínu um ákvörðun vaxtabóta fyrri ára, sbr. 1. mgr. 97. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. tilvitnaðra laga.

30.–31. gr. og 35. gr. koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2027 og á staðgreiðsluárinu 2026 eftir því sem við á.

Gjört á Bessastöðum, 24. desember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Daði Már Kristófersson.

A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál