Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Eyjafjarðarsveit

Málaflokkur

Skipulagsmál, Eyjafjarðarsýsla

Undirritunardagur

17. apríl 2026

Útgáfudagur

5. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 441/2026

17. apríl 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Eyjafjarðarsveit.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar á fundi sínum 16. apríl 2026 eftirfarandi deiliskipulag:

Deiliskipulag athafnasvæðis á Bakkaflöt.

Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt. Skipulagssvæðið er um 7,2 ha að stærð og er staðsett um 600 m sunnan Hrafnagilshverfis. Í skipulaginu er gert ráð fyrir þremur götum, merktum A, B og C, og lóðum fyrir fjölbreytta athafnastarfsemi, móttökustöð fyrir úrgang, geymslusvæði og veitumannvirki. Jafnframt er gert ráð fyrir gangstéttum meðfram öllum götum, reiðleið meðfram Eyjafjarðará, skjólbeltum og jarðvegsmönum til að draga úr innsýn og bæta ásýnd svæðisins, auk aðkomu að efnistökusvæði í Eyjafjarðará. Ofanvatnslausnir, settjörn og hreinsivirki fyrir fráveitu eru jafnframt hluti af skipulaginu.

Ofangreind tillaga hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

F.h. Eyjafjarðarsveitar, 17. apríl 2026.

Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026

Tengd mál