Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Tóbak

Undirritunardagur

9. júlí 2026

Útgáfudagur

23. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 838/2026

9. júlí 2026

REGLUGERÐ

um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1250/2024 um útlit og viðvörunarmerkingar tóbaksvara, losun skaðlegra tóbaksefna, mæliaðferðir og skýrslugjöf.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir fyrsta málslið í 6. mgr. kemur: Það má koma fyrir á tveimur stöðum á ytra yfirborði einingarpakka eða ytri umbúða.
  2. Á eftir 6. mgr. koma fjórar nýjar málsgreinar svohljóðandi:

    Á einum stað á ytra yfirborði einingarpakka eða ytri umbúða má koma fyrir upplýsingum um framleiðanda. Þær skulu afmarkast við nafn hans, heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer og framleiðsluland. Tilgreina skal landið á svofelldan hátt: „Framleitt í“ og heiti lands þar á eftir í þágufalli.

    Notast skal við leturgerðina Helvetica á ytra yfirborði einingarpakka eða ytri umbúða. Heimilt er að notast við lágstafi, auk tölustafa á bili 0-9. Jafnframt er heimilt að notast við hástafi í upphafi máls og á eftir punkti í samræmi við íslenskar ritreglur, sbr. auglýsingu nr. 695/2016. Leturstærð skal að hámarki vera 10 punktar og skal letrið vera í litnum Pantone Cool Gray 2 C.

    Upplýsingar um heiti tóbaksvöru og undirtegundar, auk upplýsinga um framleiðanda, mega ekki skyggja á almenna viðvörun, upplýsingatexta, textaviðvörun og upplýsingar um aðstoð við að hætta að reykja.

    Strikakóða má staðsetja á botni eða hlið einingarpakka eða ytri umbúða. Hann skal vera svartur á hvítum bakgrunni eða í litnum matt Pantone Cool Gray 2 C á hvítum bakgrunni. Ekki má birtast mynd, mynstur eða tákn í kóðanum sem líkist nokkru öðru en strikakóða.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 9. júlí 2026.

Ásta Valdimarsdóttir.

Guðríður Bolladóttir.

B deild — Útgáfudagur: 23. júlí 2026

Tengd mál