Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

2. janúar 2026

Útgáfudagur

19. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 15/2026

2. janúar 2026

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2026.

Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda ársins 2026, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1370/2025, er til og með 31. maí 2026 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@skatturinn.is fyrir lok umsóknarfrests.

Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2025 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. skattstofnar tekjuársins 2024, og að álögð gjöld 2026 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en var við álagningu 2025.

Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2026 ásamt lögboðnum fylgiskjölum, þ.m.t. ársreikningi. Hafi umsækjandi þegar skilað rafrænu framtali 2026 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1370/2025 og tekur þegar gildi.

Reykjavík, 2. janúar 2026.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 19. janúar 2026

Tengd mál