Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
26. júní 2026
Útgáfudagur
10. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 796/2026
26. júní 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Gunnarsholt, land, L164499, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 11. febrúar 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir skógarplöntuframleiðslu við Gunnarsholt. Gert er ráð fyrir framleiðslu skógarplantna í gróðurhúsum/léttum byggingum sem og utanhúss innan ræktaðra skjólbelta. Heimilað verður að byggja skemmur/gróðurhús og annan húsakost sem þarf til ræktunarinnar og einnig verður starfsmannaaðstaða til viðveru og gistingar. Starfsmenn eru að jafnaði allt að 10 en á álagstímum geta störf á svæðinu orðið allt að 60. Gert er ráð fyrir að plantað verði trjám og skjólbeltum til að auka skjól og afmarka starfsemina. Aðkoman er af Rangárvallavegi um veg innan svæðis. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 26. júní 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026