Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Félagsmál, Upplýsingatækni
Undirritunardagur
18. mars 2026
Útgáfudagur
25. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 20/2026
18. mars 2026
LÖG
um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIMarkmið, gildissvið og orðskýringar.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.
2. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila.
Lögin gilda ekki um:
- Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum útvarpsrekenda í almannaþágu.
- Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks.
3. gr. Orðskýringar.
Í lögum þessum hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem hér segir:
- Opinber aðili: Ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og samtök og aðrir opinberir aðilar.
- Smáforrit fyrir fartæki: Notkunarhugbúnaður sem er hannaður og þróaður af eða fyrir hönd opinberra aðila, til notkunar fyrir almenning á fartækjum eins og snjallsímum eða spjaldtölvum.
- Vöktunaraðili: Sá aðili sem ráðherra felur með reglugerð að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar samkvæmt lögum þessum.
II. KAFLIKröfur og skyldur.
4. gr. Aðgengiskröfur.
Opinberir aðilar skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera vefsetur sín og smáforrit fyrir fartæki aðgengileg með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.
5. gr. Óhófleg byrði.
Opinberir aðilar skulu uppfylla aðgengiskröfur skv. 4. gr. að því marki sem þær verða þeim ekki óhófleg byrði.
Við mat á því hvort um óhóflega byrði sé að ræða skv. 1. mgr. skal tekið tillit til stærðar, bolmagns og eðlis viðkomandi opinbers aðila, ásamt áætluðum kostnaði og ávinningi fyrir aðilann í tengslum við áætlaðan ávinning fyrir fatlað fólk.
6. gr. Aðgengisyfirlýsing og endurgjöf.
Opinberir aðilar skulu birta og uppfæra reglulega yfirlýsingu um aðgengi á vefsetrum sínum og í smáforritum fyrir fartæki.
Opinberir aðilar skulu koma á fót aðgengilegri leið fyrir notendur til að veita endurgjöf, tilkynna um vanefndir á aðgengiskröfum og biðja um upplýsingar sem eru undanskildar.
III. KAFLIEftirlit og framfylgd.
7. gr. Reglubundið eftirlit og skýrslugjöf.
Vöktunaraðili skal árlega gera úttekt á úrtaki vefsetra og smáforrita opinberra aðila.
Niðurstöður hverrar úttektar skulu birtar opinberlega. Vöktunaraðili skal á þriggja ára fresti taka saman skýrslu um niðurstöður eftirlits og skila til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Vöktunaraðili skal, til að styðja við framkvæmd laga þessara, gefa út almennar leiðbeiningar um framkvæmd tæknilegra krafna, útbúa og birta fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu skv. 6. gr. og stuðla að þjálfun og vitundarvakningu um stafrænt aðgengi hjá opinberum aðilum.
8. gr. Kvartanir og úrbætur.
Hver sá sem telur að opinber aðili uppfylli ekki kröfur laga þessara getur beint ábendingu til viðkomandi aðila.
Ef ekki er brugðist við ábendingu skv. 1. mgr. á fullnægjandi hátt innan hæfilegs frests er unnt að beina formlegri kvörtun til þess stjórnvalds sem fer með kærumál samkvæmt lögum þessum. Stjórnvaldið getur beint bindandi fyrirmælum til opinbers aðila um að gera úrbætur innan hæfilegs frests.
9. gr. Dagsektir.
Sinni opinber aðili ekki fyrirmælum stjórnvalds skv. 8. gr. innan tilsetts frests getur stjórnvaldið lagt dagsektir á viðkomandi aðila.
Dagsektir renna í ríkissjóð og falla niður þegar úrbætur hafa verið gerðar að mati stjórnvalds.
IV. KAFLIGildistaka o.fl.
10. gr. Innleiðing.
Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 frá 26. október 2016 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 frá 5. febrúar 2021.
11. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
- Nánari afmörkun á undanþágum frá gildissviði laganna skv. 2. mgr. 2. gr.
- Tæknilegar kröfur og staðla um aðgengi skv. 4. gr.
- Skilyrði og formlegt ferli fyrir mat á óhóflegri byrði skv. 5. gr.
- Form, lágmarksefni, birtingu og fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu, svo og fyrirkomulag endurgjafar skv. 6. og 7. gr.
- Hlutverk og tilnefningu eftirlitsaðila annars vegar og framfylgdaraðila hins vegar, þar á meðal að:
- fela sérstakri starfseiningu eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð ráðherra hlutverk vöktunaraðila til að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar skv. 7. gr.,
- fela stjórnvaldi það hlutverk að annast meðferð kærumála og úrskurða um brot skv. 8. gr.
- Aðferðafræði fyrir eftirlit og skýrslugjöf skv. 7. gr.
- Málsmeðferð og fresti vegna kvartana og úrbóta skv. 8. gr.
- Viðbótarráðstafanir ríkisins til að stuðla að þjálfun og aukinni vitund um aðgengismál skv. 3. mgr. 7. gr.
- Fjárhæð, útreikning, álagningu og innheimtu dagsekta skv. 9. gr.
12. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. koma ákvæði 4.–9. gr. til framkvæmda sem hér segir:
- 1. janúar 2027 fyrir vefsetur opinberra aðila sem voru fyrst gerð almenningi aðgengileg eftir 1. janúar 2015.
- 1. júlí 2027 fyrir önnur vefsetur opinberra aðila.
- 1. janúar 2028 fyrir smáforrit opinberra aðila fyrir fartæki.
Gjört á Bessastöðum, 18. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 25. mars 2026