Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Skipulagsmál, Keflavíkurflugvöllur
Undirritunardagur
18. ágúst 2026
Útgáfudagur
2. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 951/2026
18. ágúst 2026
STARFSREGLUR
fyrir skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar.
1. gr. Markmið.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar fer með skipulagsvald á flugvallarsvæðinu og fjallar um og afgreiðir skipulagstillögur Isavia ohf. í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum á hverjum tíma. Hafa skal hliðsjón af samgönguþörfum þjóðarinnar til framtíðar, varnarstarfsemi og þörfum rekstraraðila flugsækinnar starfsemi sem talin er nauðsynleg á flugvallarsvæðinu.
Með reglum þessum er kveðið nánar á um starfsemi skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð, nr. 65/2023.
2. gr. Gildissvið.
Skipulagssvæði nefndarinnar er flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar, A-svæði, eins og það er skilgreint á hverjum tíma í lögum um svæðaskiptingu Keflavíkurflugvallar, nr. 176/2006. Samþykki nefndarinnar við deili- eða aðalskipulagstillögu fyrir flugvallarsvæðið telst fullnaðarafgreiðsla málsins á sveitarstjórnarstigi. Við gerð svæðisskipulags á Suðurnesjum, samkvæmt skipulagslögum, eru hlutaðeigandi skipulagsyfirvöld bundin af samþykktu aðalskipulagi flugvallarsvæðisins.
3. gr. Starfsreglur.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar:
- starfar eftir skipulagslögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim eftir því sem við getur átt hverju sinni og með þeim takmörkunum sem leiða af 6. gr. laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð, nr. 65/2023;
- skal hafa samráð við utanríkisráðherra við afgreiðslu á deili- og aðalskipulagstillögum, sbr. 4. og 5. mgr. 6. gr. laga nr. 65/2023 (skv. samningi milli utanríkisráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands annast sú síðarnefnda framkvæmd skipulags- og mannvirkjamála á öryggis- og varnarsvæðum sbr. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 65/2023, 8. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010, að teknu tilliti til 62. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010);
- skal, eftir því sem unnt er, taka tillit til þarfa aðliggjandi sveitarfélaga, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar.
4. gr. Meginverkefni skipulagsnefndarinnar.
Meginverkefni skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar eru að:
- fjalla um stefnumörkun í skipulagsmálum Keflavíkurflugvallar í samræmi við stefnumótun stjórnvalda í samgöngumálum á hverjum tíma;
- fjalla um skipulagstillögur fyrir flugvallarsvæðið, sem Isavia ohf. hefur látið vinna;
- taka þátt í gerð svæðisskipulags með nærliggjandi sveitarfélögum og afgreiða með endanlegum hætti svæðisskipulagstillögur fyrir hönd flugvallarins;
- annast kynningu og auglýsingu aðal- og deiliskipulagstillagna sem og svæðisskipulagstillagna með aðliggjandi sveitarfélögum eftir því sem við á;
- annast grenndarkynningar vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi og vegna byggingarleyfisumsókna á þegar byggðum svæðum þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag;
- fjalla um athugasemdir við auglýstar skipulagstillögur;
- afgreiða endanlega á sveitarstjórnarstigi aðal- og deiliskipulagstillögur;
- meta hvort leyfisskyldar framkvæmdir séu í samræmi við skipulagsáætlanir og hafa eftirlit með því að framkvæmdir háðar framkvæmdaleyfi séu í samræmi við staðfest aðalskipulag og deiliskipulag og ákvæði laga og reglugerða um skipulagsmál;
- fjalla um umsóknir um framkvæmdaleyfi og annast afgreiðslu þeirra;
- fjalla um skipulagsáætlanir aðliggjandi sveitarfélaga og veita umsögn um þær eftir því sem þurfa þykir í samræmi við lög og reglugerðir. Sama á við um matsáætlanir framkvæmda á aðliggjandi svæðum sem snerta hagsmuni Keflavíkurflugvallar.
5. gr. Um starfsemi skipulagsnefndarinnar.
Nefndin skal funda eftir því sem þurfa þykir og ekki skal líða lengri tími en fjórar vikur frá því erindi berst nefndinni þar til það er tekið fyrir á fundi. Formaður skipulagsnefndar eða ritari í umboði hans boðar til funda með skriflegum hætti. Heimilt er að boða til funda með tölvupósti á tölvupóstfang sem nefndarmenn tiltaka. Fundi skal boða með sjö sólarhringa fyrirvara sé þess nokkur kostur, en þó aldrei með minna en tveggja sólarhringa fyrirvara.
Dagskrá fundar skal fylgja fundarboði. Formaður stýrir fundum samkvæmt dagskrá og undirbýr þá. Fundi skipulagsnefndar skal halda ef einn eða fleiri nefndarmanna óska þess eða telji formaður þess þörf. Ef ósk berst frá nefndarmanni um fund skal boðað til hans innan viku frá því að ósk berst formanni og skal fundurinn haldinn svo fljótt sem verða má. Fundur er lögmætur ef réttilega er til hans boðað og meirihluti nefndarmanna sækir hann. Hver nefndarmaður fer með eitt atkvæði á fundum og ræður afl atkvæða úrslitum við afgreiðslu máls. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.
Meiriháttar ákvarðanir má ekki taka nema allir nefndarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið, ef þess er nokkur kostur. Óski nefndarmaður eftir frestun á afgreiðslu máls til annars fundar er rétt að verða við þeirri beiðni, enda þoli málið slíka bið.
Halda skal fundargerð um það sem gerist á fundum skipulagsnefndarinnar og skal hún send til nefndarmanna innan þriggja sólarhringa frá fundi. Telst hún samþykkt með áritun fundarmanna eða í síðasta lagi eftir tíu daga frá fundi ef ekki hafa borist athugasemdir. Í fundargerð skal bóka hvaða nefndarmenn eru mættir, hvað sé á dagskrá fundarins og hvaða ákvarðanir hafa verið teknar auk úrslita atkvæðagreiðslna. Nefndarmenn eiga rétt á því að leggja fram stutta skriflega lýsingu á afstöðu sinni og fá bókaða í fundargerð. Fundarmönnum er skylt að gæta þagmælsku um atriði er þeir fá vitneskju um í starfi nefndarinnar og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Formaður skal vekja athygli á málum sem leynt skulu fara. Þagnarskylda helst þótt nefndarmaður láti af starfi í nefndinni.
Með skipulagsnefndinni skal starfa ritari sem tilnefndur er af innviðaráðuneytinu. Ritari ritar fundargerðir nefndarinnar, tekur við erindum til hennar og annast kynningu á afgreiðslum nefndarinnar og aðstoðar auk þess formann nefndarinnar við undirbúning funda nefndarinnar. Ritari situr fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt.
6. gr. Sérstakt hæfi nefndarmanna.
Um sérstakt hæfi nefndarmanna gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
7. gr. Annað.
Isavia ohf. leggur skipulagsnefndinni til fundaraðstöðu. Félagið leggur nefndinni einnig til aðstöðu til varðveislu gagna sem og almenna skrifstofuþjónustu. Fulltrúi félagsins hefur heimild til að sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt.
Isavia ohf. heldur úti heimasíðu og útvegar skipulagsnefndinni rými á síðunni til kynningar á auglýstum skipulagstillögum og öðrum atriðum er varða starfsemi nefndarinnar.
Kostnaður við störf skipulagsnefndarinnar, nefndarlaun, auglýsingar og kynning, sérfræðikostnaður o.þ.h. greiðist af innviðaráðuneytinu.
8. gr. Gildistaka.
Starfsreglur þessar, sem settar er samkvæmt heimild í 3. mgr. 6. gr. laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð, nr. 65/2023, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi starfsreglur fyrir skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar nr. 1086/2008 frá 10. nóvember 2008.
Innviðaráðuneytinu, 18. ágúst 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 2. september 2026