Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
13. janúar 2020
Útgáfudagur
29. janúar 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 54/2020
13. janúar 2020
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1042/2003 um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í læknadeild Háskóla Íslands.
1. gr.
Á eftir 2. málslið 2. mgr. 3. gr. reglnanna bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef próftökugjald er innheimt, skal koma fram á heimasíðu læknadeildar hvenær greiðslu þess skuli lokið. Hafi greiðsla próftökugjalds ekki borist fyrir þann tíma, fellur réttur til að þreyta inntökuprófið niður.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
-
1.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu læknadeildar með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum framhaldsskóla. Inntökuprófið tekur tvo daga, og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum. - Á eftir orðunum „almennri þekkingu“ í 1. málslið 2. mgr. bætast við orðin: yrtri rökfærslu, upplýsingalæsi og lesskilningi, nálgun og úrlausn vandamála.
- Í stað prósentutölunnar „15%“ í 2. málslið 2. mgr. kemur: 30%.
- Í stað prósentutölunnar „55%“ í 1. málslið 3. mgr. kemur: 70%.
-
4.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Við gerð inntökuprófsins er aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011 höfð til hliðsjónar. - 6., 7., 8. og 9. mgr. falla brott.
- 2. málsliður núverandi 13. mgr. fellur brott.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. janúar 2020.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2020