Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur
Undirritunardagur
26. ágúst 2026
Útgáfudagur
9. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 968/2026
26. ágúst 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Hvítuborgir, L218057, uppskipting lands.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Hvítuborga, L218057. Breytingin felst í því að landinu er skipt upp í tvær landeignir. Nyrðri landeignin fær staðfangið Hvítuborgir 2.
Samþykkt í sveitarstjórn 10. júlí 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. ágúst 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. september 2026