Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
4. desember 2013
Útgáfudagur
20. desember 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1144/2013
4. desember 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.
1. gr.
Við 3. gr. bætist nýr stafliður, sem orðist svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 6/2013 frá 8. janúar 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 91/670/EBE, reglugerðar (EB) nr. 1592/2002 og tilskipunar 2004/36/EB, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. júní 2013, bls. 160, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2013 þann 14. júní 2013.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 4. desember 2013.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 20. desember 2013