Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
3. mars 2026
Útgáfudagur
17. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 255/2026
3. mars 2026
REGLUR
varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2025 til 30. desember 2025.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.
2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2312 frá 17. nóvember 2025 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2025 til 30. desember 2025 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2026 frá 6. febrúar 2026.
Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): Stjtíð. ESB, deild L, 2025/2312, hinn 18. nóvember 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 3. mars 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 17. mars 2026