Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hvalfjarðarsveit

Undirritunardagur

7. október 2026

Útgáfudagur

21. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1112/2026

7. október 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Kross og Krosslands eystra.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 7. október 2026 breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. júlí 2026.

Í breytingunni felst að samfélagsþjónusta S8 er felld út og verður hluti af íbúðarbyggð ÍB4 og ÍB5 vegna landskipta milli Kross og Krosslands eystra. Íbúðum fjölgar úr 255 í 294.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. október 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 21. október 2026

Tengd mál