Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármálaráðuneytið (2001-2012)
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
28. desember 2010
Útgáfudagur
30. desember 2010
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 163/2010
28. desember 2010
LÖG
um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (rafræn þjónustusala og eftirlit vegna áætlana).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
3. tölul. 4. gr. laganna orðast svo: Þeir sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir 1.000.000 kr. eða minna á hverju 12 mánaða tímabili frá því að starfsemi hefst.2. gr.
Á eftir 5. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, 6. mgr., svohljóðandi:Ríkisskattstjóra er heimilt að synja aðila um skráningu á virðisaukaskattsskrá liggi fyrir að opinber gjöld hans séu áætluð á einhverju ári af næstliðnum þremur tekjuárum á undan því ári sem sótt er um skráningu á virðisaukaskattsskrá.
3. gr.
Í stað orðsins „vélknúinna“ í 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: skráningarskyldra.4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. tölul. 1. mgr. 12. gr. laganna:a. Á eftir orðinu „sérfræðiþjónusta“ í c-lið kemur: sem og gagnavinnsla og upplýsingamiðlun.
b. D-liður orðast svo: rafrænt afhent þjónusta; þjónusta þessi telst ávallt nýtt þar sem kaupandi þjónustunnar hefur búsetu eða starfsstöð; sama gildir um sölu gagnavera á hvers kyns blandaðri þjónustu til kaupenda sem búsettir eru erlendis og hafa ekki fasta starfsstöð hér á landi.
5. gr.
Í stað tilvísunarinnar „sbr. 26. gr.“ í 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: sbr. 25. gr.6. gr.
Við 1. mgr. 16. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skilyrði innskattsfrádráttar er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. laganna:a. Í stað „1.400.000 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: 3.000.000 kr.
b. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Virðisaukaskattsskýrslu skal skila rafrænt til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður. Ríkisskattstjóri getur veitt heimild til eins árs í senn til þess að skila virðisaukaskattsskýrslu á pappír ef gildar ástæður eru fyrir hendi og metur hann í hverju tilviki fyrir sig hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 25. gr. laganna:a. Í stað orðanna ,,fimmtán daga“ í 1. og 3. málsl. kemur: tuttugu og eins dags.
b. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Með skattákvörðun í þessu sambandi er ekki átt við áætlanir á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. þessarar greinar og 1. og 2. mgr. 26. gr.
9. gr.
Á eftir 27. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 27. gr. A og 27. gr. B, svohljóðandi:
a.
(27.
gr.
A.)
Hafi
skattaðili
sætt
áætlun
virðisaukaskatts
skv.
25.
eða
26.
gr.
samfellt
í
tvö
ár
eða
lengur
er
ríkisskattstjóra
heimilt
að
fella
hann
af
virðisaukaskattsskrá.
Skattaðili
sem
hefur
verið
felldur
af
virðisaukaskattsskrá
skv.
1.
mgr.
getur
ekki
skráð
sig
aftur
nema
hann
hafi
gert
fullnægjandi
skil
á
virðisaukaskattsskýrslum
og
virðisaukaskatti.
Í
stað
fullnægjandi
skila
á
virðisaukaskatti
getur
ríkisskattstjóri
heimilað
skattaðila
að
leggja
fram
tryggingu
í
formi
skilyrðislausrar
sjálfskuldarábyrgðar
banka
fyrir
endurákvörðuðum
virðisaukaskatti
skv.
1.
málsl.
þessarar
málsgreinar,
að
viðbættu
álagi,
vöxtum
og
öðrum
innheimtukostnaði.
Skattaðili
sem
hefur
verið
skráður
að
nýju
á
virðisaukaskattsskrá
skv.
2.
mgr.
skal
nota
hvern
almanaksmánuð
sem
uppgjörstímabil
í
að
minnsta
kosti
tvö
ár
frá
og
með
því
tímabili
sem
skráning
á
sér
stað
að
nýju
og
skal
gjalddagi
vera
15
dögum
eftir
að
uppgjörstímabili
lýkur.
Hafi
skattaðili
gert
fullnægjandi
skil
á
þessu
tímabili
skal
hann
að
því
loknu
standa
skil
á
virðisaukaskatti
samkvæmt
almennum
reglum
24.
gr.
Ákvæði
3.
mgr.
gilda
einnig
um
nýskráningu
á
virðisaukaskattsskrá
skv.
5.
gr.
og
endurskráningu
skv.
2.
mgr.
þessarar
greinar
ef
skattaðili
sjálfur,
eigandi,
framkvæmdastjóri
eða
stjórnarmaður,
sé
um
félag
að
ræða,
hefur
orðið
gjaldþrota
á
næstliðnum
fimm
árum
fyrir
skráningu
á
virðisaukaskattsskrá.
Fjármálaráðherra
er
heimilt
í
reglugerð
að
kveða
nánar
á
um
framkvæmd
þessarar
greinar.
b.
(27.
gr.
B.)
Berist
virðisaukaskattsskýrsla
eftir
að
skattaðili
hefur
sætt
áætlun
skal
ríkisskattstjóri
leggja
á
hann
gjald
að
fjárhæð
5.000
kr.
fyrir
hverja
virðisaukaskattsskýrslu
sem
hefur
ekki
verið
skilað
á
réttum
tíma
skv.
2.
mgr.
24.
gr.
Fella
má
niður
gjald
skv.
1.
mgr.
ef
skattaðili
færir
gildar
ástæður
sér
til
málsbóta
og
metur
ríkisskattstjóri
það
í
hverju
tilviki
hvað
skuli
telja
gildar
ástæður
í
þessu
sambandi.
Innheimtumaður
ríkissjóðs
annast
innheimtu
gjaldsins
sem
rennur
í
ríkissjóð.
10. gr.
Í stað orðanna „rannsóknarlögreglustjóra ríkisins“ í 7. mgr. 41. gr. laganna kemur: ríkislögreglustjóra.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:a. Í stað orðanna „14 dögum“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: 30 dögum.
b. Á eftir 4. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðsla til byggingaraðila sem byggir íbúðarhúsnæði til sölu eða leigu og er skattskyldur skv. 2. mgr. 3. gr. má því aðeins fara fram að hann hafi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslu fyrir sama tímabil og endurgreiðslubeiðni hans tekur til og skal endurgreiðslu samkvæmt þessum málslið skuldajafnað á móti álögðum virðisaukaskatti sama tímabils.
c. 4. mgr. fellur brott.
12. gr.
Á eftir 42. gr. laganna kemur ný grein er verður 42. gr. A, svohljóðandi:Innflutningur á netþjónum og tengdum búnaði skal vera undanþeginn virðisaukaskatti í þeim tilvikum þegar eigendur þeirra eru heimilisfastir í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum og ekki með fasta starfsstöð hér á landi í skilningi 4. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Með tengdum búnaði er átt við búnað sem er nauðsynlegur þáttur í virkni netþjónanna og nýtist eingöngu eiganda viðkomandi netþjóns.
Skilyrði undanþágu skv. 1. mgr. eru:
1. Eigandi netþjóna og tengds búnaðar sé í virðisaukaskattsskyldri starfsemi í heimaríki sínu.
2. Starfsemi eiganda netþjóna og tengds búnaðar væri skráningarskyld samkvæmt lögum þessum væri hún rekin hér á landi.
3. Netþjónar og tengdur búnaður sé gagngert fluttur til landsins til notkunar eða staðsetningar í gagnaveri sem eigandi þeirra er í viðskiptum við.
4. Netþjónar og búnaður sé eingöngu nýttur af eigandanum en ekki í annarri starfsemi gagnaversins.
5. Vinnsla netþjóna og tengds búnaðar sé nýtt utan Íslands eða í þágu aðila sem ekki eru heimilisfastir eða með fasta starfsstöð hér á landi.
Í skilningi þessa ákvæðis er gagnaver sérútbúið húsrými sem hannað er fyrir búnað til upplýsingavinnslu og fyrir þá starfsemi sem því tengist.
Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar, þ.m.t. til hvaða búnaðar hún nær.
Grein þessi skal endurskoðuð að tveimur árum liðnum frá því að hún kemur til framkvæmda.
13. gr.
Ákvæði til bráðabirgða X í lögunum orðast svo:Heimilt er að endurgreiða þeim sem leyfi hafa til fólksflutninga í atvinnuskyni samkvæmt lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga og farmflutninga á landi, 2/3 hluta þess virðisaukaskatts sem greiddur er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða og almenningsvagna á tímabilinu frá 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011. Endurgreiðsluheimildin vegna hópferðabifreiða er bundin við ökutæki sem aðallega eru ætluð til fólksflutninga, eru skráð fyrir 18 manns eða fleiri að meðtöldum ökumanni og eru nýskráð á tímabilinu og búin aflvélum samkvæmt EURO 5 staðli ESB. Fjármálaráðherra setur nánari reglur um framkvæmd endurgreiðslunnar.
14. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2010“ í ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum kemur: 31. desember 2011.15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum:a. Í stað tilvísunarinnar „1. mgr. 42. gr.“ tvívegis í 1. mgr. kemur: 2. mgr. 42. gr.
b. Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2011“ í 1. og 2. mgr. kemur: 1. janúar 2012.
16. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2011.Ákvæði b-liðar 4. gr. og 12. gr. öðlast þegar gildi en koma til framkvæmda 1. maí 2011.
Gjört á Bessastöðum, 28. desember 2010.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Steingrímur J. Sigfússon.
A deild - Útgáfud.: 30. desember 2010