Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni

Undirritunardagur

12. maí 2026

Útgáfudagur

15. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 485/2026

12. maí 2026

REGLUGERÐ

um (12.) breytingu á reglugerð um flutning úrgangs á milli landa, nr. 822/2010.

1. gr.

Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 1. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað 1. mgr. kemur ný málsgrein svohljóðandi:
    Öll skipti á gögnum, upplýsingum og skjölum vegna flutnings úrgangs á milli landa, þ.m.t. skrár, tilkynningar og samþykki Umhverfis- og orkustofnunar, skulu fara fram í stafrænu, miðlægu kerfi Evrópusambandsins. Þar er jafnframt að finna eyðublöð vegna flutningstilkynninga. Umhverfis- og orkustofnun leiðbeinir framleiðendum úrgangs, þeim sem hafa úrgang í vörslu sinni og þeim aðilum sem meðhöndla úrgang um kerfið og veitir þjálfun í notkun þess. Hver notandi ber ábyrgð á þeim gögnum, upplýsingum og skjölum sem hann setur í kerfið.
  2. Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu skipti á gögnum, upplýsingum og skjölum vegna flutnings úrgangs á milli landa sem hefur verið tilkynntur og fyrir lá staðfesting viðtökuríkis á að tilkynning væri rétt gerð fyrir 21. maí 2026 ekki fara fram í stafrænu, miðlægu kerfi Evrópusambandsins.

3. gr. Lagastoð.

Reglugerðin er sett með stoð í w- og x-liðum 43. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerðin öðlast gildi 21. maí 2026.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 12. maí 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi