Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Landhelgismál
Undirritunardagur
2. júlí 2026
Útgáfudagur
10. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 791/2026
2. júlí 2026
REGLUGERÐ
um (10.) breytingu á reglugerð nr. 860/2025 um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.
1. gr.
Í töflu í 4. gr. reglugerðarinnar er gerð breyting, svohljóðandi:
| Tegund | Ráðlagður heildarafli | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar |
| Íslensk sumargotssíld | 80.307 | 80.307 | 4.256 | 76.051 |
| Makríll: | 31.396 | 31.396 | 1.664 | 29.732 |
| Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 | 31.396 | 30.896 | 1.664 | 29.232 |
| Til ráðstöfunar skv. 10. gr. b. laga nr. 116/2006 | 500 | 500 |
2. gr.
Við 18. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Um borð í fiskiskipum skal vera búnaður til að koma í veg fyrir að fuglar og spendýr festist í veiðarfærum þegar veiðarfæri eru sett í sjó.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, 2. og 30. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996, 19. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, og 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. júlí 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Hallveig Ólafsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026