Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málaflokkur

Kvikmyndir

Undirritunardagur

24. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 105/2025

24. desember 2025

LÖG

um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging gildistíma o.fl.).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „heildarframleiðslukostnaði“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: framleiðslukostnaði.
  2. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

    Með heildarframleiðslukostnaði er í lögum þessum átt við heildarframleiðslukostnað kvikmynda- eða sjónvarpsefnis, óháð því hvar hann fellur til.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:

  1. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Aðalframleiðslutímabil verkefnis skal hefjast innan árs frá dagsetningu vilyrðis fyrir endurgreiðslu skv. 3. mgr. 3. gr. Umsóknaraðili skal tilkynna nefnd um endurgreiðslur hvenær aðalframleiðslutímabil hefst. Hafi aðalframleiðslutímabil verkefnis ekki hafist innan tilskilins tíma, og ekki borist rökstudd beiðni um framlengingu, fellur vilyrðið sjálfkrafa úr gildi.

    Framlengingu skv. 3. mgr. er heimilt að veita einu sinni og er hún aðeins veitt ef raunhæft þykir að aðalframleiðslutímabil geti hafist innan árs frá beiðni um framlengingu.
  2. Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: sbr. þó 4. mgr.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:

  1. Á eftir 2. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir 1. mgr. skal hlutfall endurgreidds framleiðslukostnaðar vera 35% af framleiðslukostnaði skv. 2. gr. og 5. gr. a fyrir framleiðslu barna- og ungmennaefnis.

    Með barnaefni er í lögum þessum átt við kvikmynda- og sjónvarpsefni, þ.m.t. leiknar kvikmyndir, hreyfimyndir og heimildarmyndir, sem sérstaklega er ætlað börnum 12 ára og yngri.

    Með ungmennaefni er í lögum þessum átt við kvikmynda- og sjónvarpsefni, þ.m.t. leiknar kvikmyndir, hreyfimyndir og heimildarmyndir, sem sérstaklega er ætlað ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára.
  2. Á eftir 5. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

    Endurgreiðslur til verkefna þar sem áætluð eða endanleg heildarendurgreiðsla er yfir 300 millj. kr. verða ekki greiddar út fyrr en einu og hálfu ári eftir að umsókn um endurgreiðslu er lögð fram, hið fyrsta.

4. gr.

Í stað tilvísunarinnar „3. mgr. 5. gr.“ í a-lið 3. mgr. 5. gr. a laganna kemur: 6. mgr. 5. gr.

5. gr.

1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:

Ákvörðun nefndar um endurgreiðslur skv. 3. og 5. gr. og framlengingu skv. 4. mgr. 4. gr. er kæranleg til ráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 4. gr.“ kemur: 8. mgr. 4. gr.
  2. Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 5. gr.“ kemur: 9. mgr. 5. gr.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

    Nefnd um endurgreiðslur skal gæta þess að umsóknir uppfylli skilyrði ákvæða 54. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, og að nefndin teljist vera veitingarvald í skilningi fyrrgreindrar reglugerðar.

7. gr.

Í stað ártalsins „2025“ í 9. gr. laganna kemur: 2028.

8. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Ráðherra setur á laggirnar starfshóp sem skal endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og að lokinni þeirri endurskoðun skila tillögum til breytinga til ráðherra fyrir 1. mars 2026.

9. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi en ákvæði 1.–6. gr. koma til framkvæmda 1. janúar 2026.

Ákvæði til bráðabirgða.

Aðili máls, þar sem beiðni um útborgun endurgreiðslu sem barst á árinu 2024 og 2025 hefur verið hafnað að hluta eða öllu leyti á grundvelli 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, eins og ákvæðið var orðað fyrir gildistöku laga þessara, á rétt á að óska eftir endurupptöku málsins.

Nefnd um endurgreiðslur skal innan 60 daga frá gildistöku laga þessara senda þeim aðilum, sem ákvæði þetta tekur til, tilkynningu um rétt þeirra til að óska eftir endurupptöku. Beiðni um endurupptöku skal berast nefndinni innan 90 daga frá dagsetningu tilkynningar nefndarinnar.

Berist nefndinni beiðni skv. 1. mgr. innan tilskilins frests skal hún taka málið til nýrrar efnismeðferðar að því er varðar þann hluta beiðninnar er lýtur að launa- og verktakakostnaði. Við þá meðferð skal leggja til grundvallar ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi eins og þau hljóða eftir gildistöku laga þessara.

Gjört á Bessastöðum, 24. desember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Logi Már Einarsson.

A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál