Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
21. maí 2026
Útgáfudagur
22. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 541/2026
21. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.
Deiliskipulag Árskógsvirkjunar í Þorvaldsdal.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 17. mars 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal, allt að 5 MW vatnsaflsvirkjun með 118 m fallhæð.
Deiliskipulagið nær yfir um 58 ha svæði í Þorvaldsdal og tekur m.a. til stíflu, aðrennslispípu, stöðvarhúss, þjónustuvegar og efnistökusvæðis. Lóðir eru afmarkaðar og byggingarreitir innan þeirra, ásamt því að sýnd er möguleg staðsetning stöðvarhúss og stíflu auk bílastæða. Þá er jafnframt sýnd staðsetning efnistökusvæða, lagnaleiða og skurða.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 40.-42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Dalvík, 21. maí 2026.
F.h. Dalvíkurbyggðar,
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 22. maí 2026