Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Útlendingar
Undirritunardagur
11. júní 2026
Útgáfudagur
30. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 740/2026
11. júní 2026
REGLUGERÐ
um stjórnun verndarmála og fólksflutninga (AMMR) og um neyðarástand og óviðráðanleg atvik á sviði fólksflutninga og verndarmála.
I. KAFLIGildissvið, markmið og hlutverk.
1. gr. Gildissvið.
Í reglugerð þessari eru útfærð nánar ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga (hér eftir AMMR-reglugerðin) og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1359 (hér eftir neyðarástandsreglugerðin), að því marki sem Ísland er bundið af ákvæðum þeirra samkvæmt lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
2. gr. Markmið.
Markmið reglugerðarinnar er að tryggja samræmda og skilvirka málsmeðferð við ákvörðun um hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, sem og framkvæmd flutnings umsækjanda um alþjóðlega vernd til þess ríkis sem ber ábyrgð á meðferð umsóknar hans, í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
Jafnframt er það markmið reglugerðarinnar að tryggja samræmda og skilvirka framkvæmd þeirra ráðstafana sem heimilt er að grípa til við neyðarástand eða óviðráðanleg atvik samkvæmt neyðarástandsreglugerðinni.
3. gr. Ábyrgð og verkaskipting stjórnvalda.
Dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt reglugerð þessari.
Hlutverk Útlendingastofnunar er að:
- Fara með framkvæmd AMMR-reglugerðarinnar hér á landi og annast málsmeðferð samkvæmt henni, þar á meðal ákvörðun um hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, samskipti við önnur ríki, sendingu og móttöku beiðna, eftirfylgni mála og eftirlit með frestum.
- Fara með framkvæmd neyðarástandsreglugerðarinnar hér á landi og annast undirbúning og mat vegna mögulegrar beiðni til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins samkvæmt reglugerðinni, svo og málsmeðferð og samskipti við önnur ríki eftir því sem við á.
Hlutverk ríkislögreglustjóra er að:
- Annast, að beiðni Útlendingastofnunar, flutning umsækjanda um alþjóðlega vernd þegar ákvörðun hefur verið tekin um að annað ríki beri ábyrgð á meðferð umsóknar hans. Útlendingastofnun getur þó annast framkvæmd flutnings eftir því sem við á.
- Bera ábyrgð á tæknilegri umsýslu þeirra upplýsingakerfa sem notuð eru við framkvæmd reglugerðarinnar.
- Annast framkvæmd þeirra ráðstafana sem lúta að flutningi umsækjanda um alþjóðlega vernd og öðrum aðgerðum sem falla undir verksvið hans samkvæmt lögum.
II. KAFLIMálsmeðferðarreglur vegna umsókna um alþjóðlega vernd.
4. gr. Málsmeðferð.
Málsmeðferð til að ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd hefst við skráningu umsóknar eða þegar fyrir liggja upplýsingar sem gefa tilefni til að meta ábyrgð annars ríkis samkvæmt AMMR-reglugerðinni.
Málsmeðferð skal fara fram án tafar og í samræmi við tímamörk AMMR-reglugerðarinnar, þar á meðal við öflun upplýsinga, mat á því hvaða ríki ber ábyrgð á umsókn og samskipti við önnur ríki.
5. gr. Upplýsingaöflun og upplýsingagjöf.
Útlendingastofnun skal, í samvinnu við lögreglu, afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, þar á meðal upplýsinga um auðkenni umsækjanda, ferðaleiðir, fyrri dvöl í öðrum ríkjum og fjölskyldutengsl, eftir því sem við á. Slík upplýsingaöflun getur hafist þegar við skráningu umsóknar hjá lögreglu samkvæmt lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
Við upplýsingaöflun skal umsækjanda gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Útlendingastofnun skal jafnframt tryggja að umsækjandi fái upplýsingar um málsmeðferð samkvæmt þessum kafla og að upplýsingar sem aflað er við meðferð máls séu skráðar og varðveittar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
6. gr. Samvinna umsækjanda við stjórnvöld.
Við meðferð mála samkvæmt þessum kafla er umsækjanda um alþjóðlega vernd skylt að vinna með stjórnvöldum að rannsókn máls og framkvæmd ákvörðunar í samræmi við AMMR-reglugerðina. Í því felst m.a. að umsækjandi veiti réttar og fullnægjandi upplýsingar um auðkenni sitt, ferðaleiðir, fyrri dvöl og fjölskyldutengsl og leggi fram þau gögn sem hann hefur yfir að ráða. Umsækjandi skal jafnframt mæta til viðtala og annarra aðgerða sem nauðsynlegar eru við meðferð máls, hlíta fyrirmælum stjórnvalda sem nauðsynleg eru til að ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar og hlíta fyrirmælum stjórnvalda sem annast flutning umsækjanda til þess ríkis sem ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar.
Skortur á samvinnu umsækjanda um alþjóðlega vernd við stjórnvöld getur, að teknu tilliti til atvika máls, haft áhrif á framgang máls, þar á meðal fresti og hraða málsmeðferðar, í samræmi við lög um útlendinga, nr. 80/2016, og getur leitt til þess að málsmeðferð fari fram og ákvörðun verði tekin á grundvelli þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsóknarinnar.
Við mat á áhrifum skorts á samvinnu umsækjanda skal gæta meðalhófs og taka tillit til aðstæðna hans.
7. gr. Forgangsröðun mála.
Við meðferð mála samkvæmt þessum kafla skal taka mið af forgangsröðun viðmiða samkvæmt AMMR-reglugerðinni, þar á meðal þegar um er að ræða fjölskyldutengsl og mál sem varða börn.
Við meðferð mála samkvæmt þessum kafla sem varða börn skal ávallt taka mið af því sem er barni fyrir bestu.
8. gr. Samskipti við önnur ríki og upplýsingakerfi.
Útlendingastofnun annast sendingu og móttöku beiðna um viðtöku og endurviðtöku umsækjanda um alþjóðlega vernd milli aðildarríkja.
Beiðnir skv. 1. mgr. skulu sendar innan tilskilinna fresta samkvæmt AMMR-reglugerðinni og studdar þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að taka afstöðu til þeirra.
Samskipti við önnur aðildarríki skulu fara fram með rafrænum hætti í samræmi við reglur og framkvæmd samkvæmt AMMR-reglugerðinni.
Við ákvörðun um hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skal taka mið af upplýsingum úr evrópska fingrafaragrunninum (Eurodac), eftir því sem við á.
9. gr. Flutningur umsækjanda.
Ríkislögreglustjóri annast flutning umsækjanda um alþjóðlega vernd til þess ríkis sem ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar, á grundvelli ákvörðunar Útlendingastofnunar.
Við flutning umsækjanda skal gætt að réttindum og stöðu hans í samræmi við lög um útlendinga og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
III. KAFLIMálsmeðferðarreglur vegna ráðstafana sem heimilt er
að grípa til við neyðarástand eða óviðráðanleg atvik.
10. gr. Ráðstafanir.
Ráðstafanir skv. 2. mgr. 2. gr. fela í sér tímabundin frávik frá almennri málsmeðferð samkvæmt AMMR-reglugerðinni, í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
Heimilt er að beita ráðstöfunum skv. 2. mgr. 2. gr., svo sem framlengdum frestum eða öðrum tímabundnum ráðstöfunum, þegar fyrir hendi eru aðstæður sem teljast fela í sér verulegt og óvenjulegt álag á verndarkerfi eða önnur óviðráðanleg atvik, í samræmi við ákvæði neyðarástandsreglugerðarinnar.
Útlendingastofnun skal meta hvort aðstæður séu fyrir hendi sem réttlæti beiðni um beitingu ráðstafana samkvæmt neyðarástandsreglugerðinni og annast undirbúning slíkrar beiðni eftir því sem við á samkvæmt lögum, í samráði við ráðherra sem fer með yfirstjórn mála skv. 3. gr.
Við mat á því hvort beita skuli slíkum ráðstöfunum skal taka mið af umfangi og eðli aðstæðna, sem og áhrifum þeirra á framkvæmd mála samkvæmt lögum um útlendinga.
11. gr. Málsmeðferð við beitingu ráðstafana.
Þegar ákvörðun hefur verið tekin samkvæmt neyðarástandsreglugerðinni um beitingu ráðstafana skal málsmeðferð samkvæmt þessum kafla fara fram án tafar og í samræmi við tímamörk og skilyrði neyðarástandsreglugerðarinnar, þar á meðal við öflun upplýsinga og samskipti við önnur ríki.
Útlendingastofnun skal tryggja að viðeigandi upplýsingar liggi fyrir og að samskipti við önnur ríki fari fram í samræmi við reglugerðina.
12. gr. Réttindi umsækjenda.
Við beitingu ráðstafana skv. 2. mgr. 2. gr. skal ávallt gætt að réttindum og stöðu umsækjenda í samræmi við lög um útlendinga og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
Beiting ráðstafana skal vera tímabundin og í samræmi við meðalhóf, með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni.
IV. KAFLISamvinna og gildistaka.
13. gr. Samvinna stjórnvalda.
Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóri skulu eiga með sér samstarf og miðla nauðsynlegum upplýsingum sín á milli til að tryggja samræmda og skilvirka málsmeðferð við framkvæmd reglugerðar þessarar.
14. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. tölul. 1. mgr. 120. gr. og 15. tölul. 2. mgr. 120. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast gildi 1. júlí 2026.
Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 30. júní 2026