Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Sorphreinsun, Norðurþing
Undirritunardagur
19. ágúst 2026
Útgáfudagur
2. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 947/2026
19. ágúst 2026
SAMÞYKKT
um meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi.
1. gr. Markmið.
Markmið samþykktar þessarar er að:
meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu valdi sem minnstum óæskilegum áhrifum á umhverfið,
draga úr myndun úrgangs, auka endurvinnslu og aðra endurnýtingu í anda hringrásarhagkerfisins,
magn úrgangs sem ekki nýtist í hagkerfinu verði á hverjum tíma eins lítið og mögulegt er,
leggja áherslu á úrgangsforvarnir,
tryggja vinnuvernd starfsfólks
tryggja góða þjónustu við íbúa,
lágmarka kostnað samfélagsins við meðhöndlun úrgangs,
að mengunarbótareglan „sá geldur sem veldur“ sé höfð að leiðarljósi við ákvörðun um gjaldtöku og vegna meðhöndlunar úrgangs.
Fyrirkomulag söfnunar úrgangs skal stuðla að því að markmiðum laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og svæðisáætlunar Norðurlands um meðhöndlun úrgangs verði náð í sveitarfélaginu, þ.m.t. töluleg markmið um endurvinnslu og endurnýtingu.
2. gr. Gildissvið.
Samþykkt þessi gildir um meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. hirðu, söfnun og förgun úrgangs í Norðurþingi. Um meðhöndlun úrgangs fer að öðru leyti í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og reglugerðar um meðhöndlun úrgangs, nr. 803/2023.
3. gr. Umsjón og eftirlit.
Skipulags- og framkvæmdaráð fer með ákvörðunarvald í málefnum sem varða söfnun og meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi í umboði sveitarstjórnar. Skipulags- og framkvæmdasvið fer með daglega yfirstjórn mála samkvæmt samþykkt þessari.
Um eftirlit fer samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og reglugerð um meðhöndlun úrgangs, nr. 803/2023.
Norðurþing ber ábyrgð á sérstakri söfnun og meðhöndlun heimilisúrgangs í sveitarfélaginu og annarri meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Norðurþing sér jafnframt til þess að reknar séu móttökustöðvar fyrir annan úrgang en þann sem safnað er sérstaklega við heimili, á þann hátt og með þeim takmörkunum sem leiðir af samþykkt þessari, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum. Gæta skal þess að ekki hljótist af mengun eða annar skaði fyrir umhverfi og að úrgangurinn uppfylli þær kröfur sem settar eru og við eiga, s.s. um flokkun og takmörkun á aðskotahlutum, þannig að úrgangurinn henti til endurnýtingar.
Norðurþing getur sinnt sérstakri söfnun og annarri meðhöndlun úrgangs á eigin vegum eða falið öðrum framkvæmd söfnunar á úrgangi, rekstri grenndar-, söfnunar- og móttökustöðva og förgun úrgangs. Sá sem sinnir framangreindri þjónustu er hér eftir nefndur þjónustuaðili. Þjónustuaðilar skulu hafa starfsleyfi skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, nr. 550/2018, eða önnur tilskilinn leyfi eftir því sem við á.
4. gr. Söfnun úrgangs við heimili.
Norðurþing sér um söfnun á heimilisúrgangi frá íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið getur sinnt söfnun úrgangs á eigin vegum eða falið öðrum framkvæmdina.
Sérhverjum húsráðanda íbúðarhúsnæðis er skylt að flokka úrgang við húsnæðið og að nota ílát, merkingar og aðferðir við flokkun og hirðu sem Norðurþing ákveður hverju sinni, í samræmi við lög og reglur þar að lútandi. Aðferðum við flokkun og hirðu er nánar lýst á vefsíðu Norðurþings. Íbúar skulu flokka heimilisúrgang í að lágmarki sjö eftirfarandi flokka: Lífúrgang, pappír/pappa, plast, textíl, málma, gler og spilliefni. Matar- og eldhúsúrgang skal setja í þar til gerða poka sem lýst er á heimasíðu Norðurþings. Tekið er á móti a.m.k. gleri, málmum og textíl á grenndar- og móttökustöð. Tilfallandi blandaður heimilisúrgangur sem ekki rúmast í íláti skal skila í viðkomandi gám á móttökustöð.
Óheimilt er að setja eftirfarandi úrgangsflokka í ílát fyrir blandaðan úrgang:
Spilliefni eða annan hættulegan úrgang.
Timbur, brotamálm, múrbrot og annan grófan úrgang. Garðaúrgang, jarðefni og grjót.
Lyfjum skal skila í lyfjabúðir
Norðurþing leggur til sorpílát, önnur en djúpgáma, undir heimilisúrgang, sem hluta af þjónustu skilgreindri í gjaldskrá. Eigandi eða umráðaaðili fasteignar skal nota þau ílát við geymslu þess úrgangs sem Norðurþing ákveður hverju sinni, í samræmi við lög og reglur þar að lútandi. Eigandi eða umráðaaðili fasteignar skal halda ílátum hreinum og í góðu ástandi svo ekki skapist heilsuspillandi aðstæður eða óþægindi af völdum þeirra.
Eigandi eða umráðaaðili fasteignar skal gæta þess að valda ekki skemmdum á ílátunum. Verði ílát fyrir skemmdum af öðrum ástæðum en eðlilegri notkun og sliti getur Norðurþing farið fram á að eigandi fasteignar greiði fyrir nýtt ílát.
Söfnunin skal fara fram innan lóðar viðkomandi íbúðarhúss eða lögaðila. Í fjöleignarhúsum þar sem sorpílát eru samnýtt skulu ákvarðanir um fjölda og stærð íláta teknar í samræmi við ákvæði laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
Jafnframt er heimilt að verða við óskum fasteignareiganda um sameiginleg ílát innan lóðar fjöleignarhúsa að fengnu samþykki allra hlutaðeigandi.
Á stöðum þar sem aðstæður leyfa er heimilt að hafa sameiginlega söfnun úrgangs fyrir aðliggjandi lóðir að því tilskildu að öll söfnun úrgangs færist af viðkomandi lóðum. Slíkt fyrirkomulag er þó ávallt háð samþykki Norðurþings.
Söfnun heimilisúrgangs skal fara fram reglulega eftir fyrirfram gerðri áætlun, staðfestri af Norðurþingi. Áætlunin skal kynnt íbúum og gerð aðgengileg á vefsvæði Norðurþings og þjónustuaðila. Norðurþing getur heimilað frávik frá áætlun vegna sérstakra aðstæðna. Slík frávik skulu auglýst eða tilkynnt hlutaðeigandi með hæfilegum fyrirvara. Skulu þá umsjónaraðilar fasteignar sinna skyldum sínum samkvæmt samþykkt þessari, á auglýstum tíma, eins og um losun samkvæmt áætlun væri að ræða.
Fasteignareiganda stendur enn fremur til boða að aðlaga þjónustu að sínum þörfum með því að óska eftir breytingu á stærð íláta. Þeir möguleikar sem eru í boði eru skilgreindir í gjaldskrá hverju sinni.
Gæta skal þess að fylla ekki ílátin meira en svo að auðveldlega megi loka þeim, flytja og tæma.
Heimilt er að óska eftir að heimilisúrgangur sé hirtur í djúpgámum sem losaðir eru með krana, sbr. 7. gr. Húsráðendur geta valið hirðutíðni djúpgámanna en losun þeirra skal ekki vera tíðari en á 14 daga fresti að jafnaði og skal blandaður úrgangur ekki hirtur sjaldnar en á 21 dags fresti að jafnaði.
5. gr. Söfnun, flokkun og ráðstöfun úrgangs hjá lögaðilum.
Norðurþing er ábyrgt fyrir reglulegri tæmingu sorpíláta og flutningi heimilisúrgangs frá lögaðilum í sveitarfélaginu svo framarlega sem því er ekki sinnt af einkaaðilum.
Frágangur og staðsetning íláta undir úrgang skal vera í samræmi við ákvarðanir Norðurþings þar um eða ákvæði deiliskipulags. Óheimilt er að geyma rekstrarúrgang á lóðum lengur en nauðsynlegt getur talist og skal frágangur vera snyrtilegur í alla staði.
Norðurþingi er heimilt að veita lögaðilum sömu þjónustu og heimilum í sveitarfélaginu, varðandi meðhöndlun heimilisúrgangs, samkvæmt gjaldskrá.
Lögaðilar skulu flokka heimilisúrgang sem fellur til hjá þeim í að lágmarki eftirfarandi flokka: Lífúrgang, pappír/pappa, plast, gler, málma, textíl og spilliefni.
Rekstrarúrgang skulu rekstraraðilar flokka þannig að hámarka megi undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu og aðra endurnýtingu, í þessari forgangsröð. Rekstraraðilum er skylt að flokka byggingar- og niðurrifsúrgang í a.m.k. eftirfarandi flokka: Spilliefni, timbur, steinefni, gler, málma, plast og gifs.
Fari lögaðili ekki að fyrirmælum eða ákvæðum samþykktar þessarar er eftirlitsaðila heimilt að beita þvingunarúrræðum skv. 66. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, m.a. að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda.
Þjónustuaðilum sem sinna söfnun heimilisúrgangs hjá lögaðilum í Norðurþingi ber að vera með staðfesta skráningu skv. reglugerð nr. 830/2022. Þjónustuaðilar sem sinna söfnun úrgangs í sveitarfélaginu skulu skila Umhverfis- og orkustofnun skýrslu um tegund, magn, uppruna og ráðstöfun úrgangs, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
Rekstraraðilar skulu koma í veg fyrir að rekstrarúrgangur safnist fyrir á lóð. Aðstaða rekstraraðila til flokkunar og meðhöndlunar úrgangs skal vera nægilega rúmgóð til að rúma flokkunarílát og úrgang sem fellur til við starfsemina milli tæminga eða hirðuumferða. Óheimilt er að geyma rekstrarúrgang utan lóðar rekstraraðila. Óheimilt er að geyma úrgang þannig að valdið geti ónæði, skaða eða lýti á umhverfi. Rekstraraðilar í Norðurþingi skulu skila öllum úrgangi til þjónustuaðila sem er með eftir atvikum staðfesta skráningu skv. reglugerð nr. 830/2022 eða starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 7/1998 eða á móttökustöð fyrir úrgang sem er með gilt starfsleyfi í samræmi við lög nr. 7/1998. Rekstraraðilum er heimilt að nýta endurvinnslustöðvar til skila á rekstrarúrgangi en skulu greiða fyrir samkvæmt gjaldskrá. Rekstraraðilum er óheimilt að nýta grenndarstöðvar eða ruslabiður sem Norðurþing rekur til afsetningar á úrgangi.
Mengaðan jarðveg skal færa til viðeigandi meðhöndlunar, sbr. reglugerð um mengaðan jarðveg, nr. 1400/2020. Um smitandi úrgang fer skv. 12. og 13. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs, nr. 803/2023.
6. gr. Flokkun úrgangs.
Skylt er að koma öllum úrgangi í viðeigandi farveg, annaðhvort með sérstakri söfnun í ílát við húsvegg, á grenndar-, söfnunar- eða móttökustöð eða beint til endurnýtingar.
Einstaklingum og lögaðilum er skylt að haga flokkun heimilis- og rekstrarúrgangs í samræmi við reglur Norðurþings um sérstaka söfnun sem tekur mið af lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og stefnu um samræmda söfnun í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Sérstök söfnun skal vera á a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum: pappír og pappa, málmum, plasti, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum.
Í sorpílát fyrir heimilisúrgang má aðeins setja þann úrgang sem fellur til við heimilishald í samræmi við nánari fyrirmæli um flokkun úrgangs. Óheimilt er að láta rúmfrekan garðaúrgang, jarðvegsefni, brotajárn, múrbrot og annan grófan úrgang í sorpílát og/eða gáma sem ætluð eru fyrir almennan heimilisúrgang. Spilliefnum, lyfjum og öðrum hættulegum úrgangi skal skilað á viðurkennda móttökustaði. Glerbrotum og öðrum oddhvössum hlutum, sem hætta er á að skaði þá sem meðhöndla úrgang eða skemmi sorpílát, skal pakkað inn eða gengið frá þeim á annan tryggilegan hátt.
Norðurþingi er heimilt, í sérstökum tilvikum, að stilla tímabundið upp gámum fyrir úrgang, t.d. í tengslum við átak í umhverfismálum.
Brjóti eigandi eða umráðaaðili fasteignar gegn ofangreindum ákvæðum eða vanrækir skyldur sínar samkvæmt þeim, áskilur Norðurþing sér rétt til að hafna losun eða móttöku úrgangs og innsigla ílát þar sem fram kemur skýring á höfnun. Þegar úr hefur verið bætt hefst regluleg hirða að nýju.
7. gr. Sorpílát, geymslur og gerði fyrir söfnun úrgangs.
Norðurþing leggur heimilum í sveitarfélaginu til ílát fyrir sérstaka söfnun á pappír og pappa, plasti, blönduðum úrgangi og lífúrgangi samkvæmt gjaldskrá. Möguleikar á frekari söfnun úrgangsflokka við húsvegg er skilgreind í gjaldskrá ef það á við.
Norðurþing áskilur sér rétt til að breyta og/eða bæta við tegundum íláta í þjónustu. Sveitarfélagið getur ákveðið fjölda og stærð íláta telji það að rými fyrir úrgang sem fellur til sé ófullnægjandi eða stærð íláts henta illa til hirðu. Að uppfylltum framangreindum skilyrðum er íbúum heimilt að óska eftir breytingum á stærð og fjölda íláta. Slík ósk er þó háð samþykki Norðurþings.
Ganga skal frá ílátum undir úrgang þannig að þau geti ekki fokið eða valdið tjóni, t.d. í þar til gerðum skýlum eða geymslum ef hægt er að koma því við og skulu þau staðsett þannig að aðgengi að þeim frá götu sé gott fyrir þjónustuaðila söfnunar úrgangs. Heimilt er að hafa úrgangsílát í geymslu innan dyra að uppfylltum almennum skilyrðum um aðgengi. Þurfi þjónustuaðili að fara inn í geymsluna til að sækja úrgangsílát skal óhindruð lofthæð ekki vera undir 200 cm. Hurðarop skal vera nægilega breitt til að auðveldlega megi fara með ílát um það og skal það vera án þröskulda. Þá skal vera búnaður til að halda dyrum opnum. Beint aðgengi skal vera að geymslu utan frá. Ef um fjöleignarhús er að ræða skal staðsetja ílát saman eða sameinast um ílát. Gott aðgengi skal vera að hverju úrgangsíláti fyrir sig og möguleiki á losun hvers þeirra án tilfærslu annarra íláta. Auðvelt skal vera að ná til handfangs íláts og nægilegt pláss til að athafna sig með þau við losun.
Húseigandi skal sjá til þess að undirlag á leið frá úrgangsíláti að götu sé þannig að auðvelt sé að flytja úrgangsílát um það. Vegalengd frá úrgangsíláti að götu þar sem sorphirðubíll getur stoppað skal ekki vera meiri en 20 metrar á auglýstum sorphirðudegi. Ef hækkun á leiðinni er meiri en 15 cm fyrir hverja 100 cm skal húseigandi gera ráðstafanir til að auðvelda færslu úrgangsíláta, t.d. með tröppum og skábrautum fyrir hjól sorpíláta. Hækkun skal ekki vera meiri en 40 cm fyrir hverja 100 cm. Tekið er tillit til aðgengis að úrgangsílátum í gjaldskrá.
Eigandi eða umráðaaðili fasteignar skal halda ílátum hreinum og í góðu ástandi. Úrgangsílát skulu jafnan standa lokuð og ekki fyllt meira en svo að auðveldlega megi loka þeim. Úrgangur sem er ekki í viðurkenndum úrgangsílátum er ekki hirtur.
Ílát verður ekki hirt ef aðstæður hindra hirðuaðila í að sinna þjónustunni. Ástæður geta m.a. verið:
Ílát inniheldur úrgang sem ekki á að safna eða flokkun úrgangs er röng.
Ílát finnst ekki eða það vantar lykla að geymslum.
Ílát eða aðstaða brýtur í bága við ákvæði samþykktar þessarar eða gildandi lög og reglur hverju sinni.
Ekki er hægt að færa ílát að hirðubíl til losunar þar sem leiðin að íláti er lokuð eða ógreiðfær.
Ef ílát er ekki hirt er íbúum tilkynnt um ástæður þess og hvernig íbúar skuli bregðast við með miða sem er límdur á viðkomandi ílát. Sveitarfélaginu er einnig heimilt að hafna losun íláta telji það aðstæður skapa hættu fyrir starfsfólk sorphirðu og aðgengi eða frágang sorpgeymslu/-gerðis ófullnægjandi.
Eigandi eða umráðaaðili fasteignar skal tryggja gott aðgengi að úrgangsílátum á þeim tíma sem heimilisúrgangi er safnað samkvæmt auglýstri áætlun Norðurþings um söfnun úrgangs. Þannig skal hann moka snjó og vinna gegn hálku á leið að úrgangsílátum eins og þörf krefur og halda leið að þeim greiðfærri. Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna losun ef kvöð um aðgengi er ekki uppfyllt og er ílát innsiglað þar sem gerð er grein fyrir ástæðu ef því er við komið. Eftir að kvöð um aðgengi er uppfyllt getur húsráðandi haft samband við Norðurþing og óskað eftir aukalosun sem þá er greitt fyrir samkvæmt gjaldskrá. Að öðrum kosti mun hirðuaðili losa viðkomandi ílát samkvæmt hirðudagatali.
Í deiliskipulagi nýrra hverfa skal tekið tillit til úrgangslausna við skipulagningu þeirra. Um skilgreiningu á djúpgámum fer eftir staðlinum IST EN 13071 og skulu gámarnir uppfylla ákvæði staðalsins. Afla skal skriflegs samþykkis Norðurþings við val á djúpgámum, fjölda þeirra og staðsetningu. Kaup á djúpgámum, rekstur þeirra og framkvæmdir við gerð aðstöðu og frágang í kringum þá, hvort sem er kassi, gámur, lúga eða annar tengdur búnaður, skal vera á kostnað og ábyrgð lóðarhafa. Djúpgámar skulu rúma það magn úrgangs sem til fellur frá fasteigninni. Við ákvörðun á fjölda djúpgáma skal minnst gera ráð fyrir fjórum úrgangsflokkum sem safna skal við heimili. Taka skal tillit til þyngdar viðkomandi úrgangsflokks við val á stærð og staðsetningu gáma.
Djúpgámar skulu vera innan lóðar viðkomandi fasteignar. Í undantekningartilfellum, þar sem sýnt er fram á með sérstökum rökstuðningi að ekki sé unnt að staðsetja djúpgáma á lóð viðkomandi fasteignar, er heimilt að staðsetja djúpgáma á sérstakri lóð sem er í tengslum við þá lóð sem fasteignin stendur á. Ætíð skal vera sami eigandi á lóð undir djúpgáma og eigandi lóðar, sbr. reglur sem gilda um djúpgáma í landi sveitarfélagsins. Staðsetning djúpgáma skal vera þannig að losun þeirra hindri ekki aðra umferð og öryggi vegfarenda sé tryggt. Lóðarhafi ber ábyrgð á rekstri djúpgáma, hreinsun og umgengni um lóðina og nánasta umhverfi hennar eins og um annars konar sorpgeymslur sé að ræða.
Við ákvörðun fjarlægðar djúpgáma frá inngangi fasteignar skal miða við viðeigandi ákvæði byggingarreglugerðar. Djúpgámar skulu vera í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir fyrir viðkomandi svæði.
8. gr. Grenndar-, söfnunar- og móttökustöðvar.
Norðurþing stendur að rekstri grenndarstöðva sem taka á móti flokkuðum úrgangi frá íbúum til endurnýtingar. Grenndarstöðvar skulu vera í samræmi við mengunarbótareglur eins og við verður komið hverju sinni. Sérstök söfnun skal vera á a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum: pappír og pappa, málmum, plasti, gleri, og textíl. Stöðvarnar skulu vera á áberandi stöðum þar sem íbúar eiga erindi og þar sem aðgengi er gott hvort sem er fyrir gangandi, hjólandi eða akandi. Óheimilt er að losa annan úrgang á grenndarstöð en þá flokka úrgangs sem tilgreindir eru með merkingum á hverri grenndarstöð. Heimilt er að hafa vöktunarbúnað á grenndarstöðvum og innheimta gjald af íbúum skili þeir öðru en heimilt er.
Norðurþing tryggir aðgang að mannaðri móttökustöð sem tekur við öllum úrgangi samkvæmt gjaldskrá.
Rekstraraðilum er bent á að fara með úrgang á móttökustöð. Sérstök söfnun skal vera á a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum: pappír og pappa, málmum, plasti, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum. Móttökustöð skal geta annast sérsöfnun á öllum flokkum byggingar- og niðurrifsúrgangs, það er a.m.k. eftirfarandi flokkum: spilliefni, timbur, steinefni, málm, gler, plast og gifs, sbr. 5. mgr. 10. gr. laga um meðhöndlun úrgangs.
Söfnunarstöð er gámasvæði sem tímabundið eða varanlega er komið fyrir í dreifðari byggðum til móttöku á afmörkuðum flokkum úrgangs. Á söfnunarstöð er eingöngu heimilt að losa þær tegundir úrgangs sem tilgreint er á hverri söfnunarstöð fyrir sig.
9. gr. Úrgangur á almannafæri.
Óheimilt er að geyma eða skilja eftir úrgang á víðavangi, götum eða gangstéttum eða opnum svæðum. Sama á við um númerslausa bíla, bílflök og sambærilega hluti. Eftirlitsaðila er heimilt að fjarlægja tæki, hluti eða ökutæki og bera eigendur þeirra allan kostnað af þeirri framkvæmd, sbr. ákvæði 14. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs, nr. 803/2023.
Óheimilt er að geyma skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, kerrur, tæki, vinnuvélar, báta eða aðra sambærilega hluti á almennum bifreiðastæðum, á götum eða á almannafæri. Heimilt er að hafa á lögbýlum afmörkuð geymslusvæði fyrir framangreind tæki og skal leitast við að hafa sjónræn áhrif þeirra í lágmarki.
10. gr. Fræðsla og upplýsingar.
Norðurþing ber ábyrgð á að handhafar úrgangs fái upplýsingar og fræðslu um skyldur fasteignareigenda, flokkun og aðra meðferð úrgangs, móttöku hans og förgun, t.d. með útgáfu eða birtingu leiðbeininga og fræðsluefnis. Norðurþing skal sjá til þess að íbúar fái kynningu á hringrásarhagkerfinu með áherslu á góða nýtingu auðlinda, t.d. takmarkaðar auðlindir, matarsóun, fatasóun, nægjusemi, fæðuöryggi og jarðvegseyðingu, með útgáfu eða birtingu leiðbeininga og fræðsluefnis.
11. gr. Heimildir til undanþágu.
Skipulags- og framkvæmdaráði er heimilt að veita heimild til frávika frá einstökum ákvæðum samþykktar þessarar, gangi frávik ekki gegn ákvæðum laga nr. 55/2003, og afleiddum reglugerðum, auk þess sem við samþykki frávika skal m.a. horft til þess að safnaður úrgangur fái viðunandi farveg og að fyrirkomulag söfnunar stuðli að því að markmiðum samþykktar þessarar verði náð. Sé óskað samþykkis frávika frá einstökum ákvæðum samþykktar þessarar skal formlegri rökstuddri beiðni þar að lútandi beint til umhverfis- og eignasviðs.
12. gr. Kvartanir, ábendingar, málsmeðferð og úrskurðir.
Hafi eigandi fasteignar fram að færa kvörtun eða ábendingu vegna úrgangshirðu, skal hann koma henni á framfæri við Norðurþing. Telji viðkomandi sig ekki fá fullnægjandi úrlausn, getur hann skotið málinu til skipulags- og framkvæmdasviðs.
Telji eigandi fasteignar sig órétti beittan eða rísi ágreiningur um framkvæmd laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, reglugerðir settar samkvæmt þeim og samþykkt þessari og um stjórnvaldsákvörðun Norðurþings er að tefla, er heimilt að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
13. gr. Gjaldtaka.
Skylt er að innheimta gjald sem næst raunkostnaði fyrir viðkomandi þjónustu, svo sem með því að miða gjaldið við magn úrgangs, gerð úrgangs, losunartíðni, frágang úrgangs og aðra þætti sem áhrif hafa á kostnað við meðhöndlun úrgangs. Sveitarfélaginu er heimilt að færa innheimtu gjalda á milli úrgangsflokka í því skyni að stuðla að markmiðum laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Jafnframt er sveitarfélaginu heimilt að hluti gjaldsins verði fast gjald eða allt að 25% af gjaldtöku málaflokksins í heild. Upphæðir og innheimta samkvæmt gjaldskrá skal vera samkvæmt ákvæðum 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjald fyrir meðhöndlun heimilisúrgangs skal miðast við fjölda, stærð og tegund íláta og tegund úrgangs. Af ílátum undir úrgang við íbúðarhús í þéttbýli sem draga þarf lengra en 10 m að lóðamörkum til losunar í hirðubíl er Norðurþingi heimilt að innheimta skrefagjald samkvæmt gjaldskrá.
Norðurþing annast skráningu íláta og skiptingu gjalds á eigendur fasteigna.
Gjald fyrir rekstur grenndar-, safn- og móttökustöðva er lagt á allar fasteignir að undanskildu atvinnuhúsnæði í sveitarfélaginu.
Gjald fyrir söfnun á heimilisúrgangi og rekstur grenndar-, safn- og móttökustöðva innheimtist með fasteignagjöldum á sömu gjalddögum. Sé þessu breytt breytist gjaldið miðað við hluta úr ári reiknað í vikum.
Rekstraraðilar skulu greiða fyrir losun og aðra meðhöndlun á öllum gjaldskyldum úrgangi samkvæmt gjaldskrá móttökustöðvar. Gjald skal vera sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu og endurspegla þann kostnað sem fellur til í Norðurþingi við meðhöndlun og tengda starfsemi, sem og við veitta þjónustu og framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
Norðurþing skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda. Í gjaldskrá skal vísa til þessarar samþykktar. Gjaldið má innheimta með aðför.
Norðurþing skal árlega birta upplýsingar um innheimt gjöld og sundurliðun á raunkostnaði á vef sínum í samræmi við 3. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
14. gr. Viðurlög.
Brjóti eigandi fasteignar gegn ákvæðum þessarar samþykktar eða vanræki skyldur sínar samkvæmt henni, skal viðkomandi áminntur skriflega að undangengnum andmælarétti og óskað úrbóta af hans hálfu. Heimilt er að synja um söfnun sorps þar til úrbætur hafa verið gerðar.
Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og þeirra viðurlaga sem þau heimila, sbr. XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Með brot á samþykkt þessari skal farið samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. einnig XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Um sektir og önnur viðurlög vegna óheimillar losunar úrgangs fer skv. 2.9. kafla byggingarreglugerðar, nr. 112/2012, sem og XVII. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Um viðurlög fer samkvæmt XIX. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 , sbr. XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, eftir sem við.
15. gr. Endurskoðun.
Samþykkt þessa skal endurskoða á fjögurra ára fresti ef þurfa þykir, s.s. ef tækninýjungar og breytingar í úrgangsmálum eiga sér stað. Að öðru leyti skal endurskoða samþykktina þegar sex mánuðir eru eftir af samningstíma þjónustuaðila úrgangsmála.
16. gr. Gildistaka.
Samþykkt þessi er sett af sveitarstjórn Norðurþings og staðfestist hér með samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 8. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, sbr. 2. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi, nr. 646/2017.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. ágúst 2026.
F. h. r.
Kjartan Ingvarsson.
Trausti Ágúst Hermannsson.
B deild — Útgáfudagur: 2. september 2026