Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

11. janúar 2021

Útgáfudagur

25. janúar 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 40/2021

11. janúar 2021

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2021.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2021, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1402/2020, er til 31. maí 2021 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@skatturinn.is fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2020 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2019, og að álögð gjöld 2021 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2020.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2021 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2021 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1402/2020 og tekur þegar gildi.

Reykjavík, 11. janúar 2021.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 25. janúar 2021

Tengd mál