Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hveragerðisbær

Málaflokkur

Sorphreinsun, Hveragerði

Undirritunardagur

13. nóvember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1460/2025

13. nóvember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar ákveður og innheimtir gjöld árlega fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ í samræmi við ákvæði 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, sbr. 12. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ nr. 737/2025. Þá er Hveragerðisbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003.

2. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ samkvæmt eftirfarandi fyrir íbúðarhúsnæði:

Fast gjald fyrir hvert heimili:  
Tegund Gjald kr. á ári
Fast gjald pr. heimili 18.000
Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
140 l spartunna 22.000
240 l tunna 40.000
660 l tunna 57.000
1.100 l tunna 99.000
140/100 l tvískipt blandaður/lífrænn 37.000
Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
140 l tunna 3.500
240 l tunna 6.000
660 l tunna 14.500
Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
140 l tunna 3.500
240 l tunna 6.000
660 l tunna 14.500
Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, lífúrgangur:
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
120 l brún tunna 6.000
240 l brún tunna 10.000

Fast gjald verður kr. 18.000 á íbúðarhúsnæði. Innifalið í fastagjaldinu er móttaka á gleri, textíl og málmum í grenndarstöðvum sveitarfélagsins auk hlutdeildar í föstum kostnaði við sorphirðuna. Gjaldi fyrir tunnur er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endurvinnslu úrgangs.

3. gr.

Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi gjalda vegna meðhöndlunar úrgangs hinn sami og fasteignagjalda. Gjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi eða þjónusta er tengd notkun fasteignar.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar 13. nóvember 2025 með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ nr. 1616/2024.

Hveragerði, 13. nóvember 2025.

Pétur G. Markan bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál