Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Gatnagerðargjöld, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

21. desember 2023

Útgáfudagur

28. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1572/2023

21. desember 2023

AUGLÝSING

um breytingu á samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald holræsa í Ísafjarðarbæ, nr. 1355/2023.

1. gr.

10. gr. samþykktarinnar orðast svo:

Nú greiðir lóðarhafi ekki gatnagerðargjald á tilskildum tíma, eða framkvæmdir hafa ekki verið hafnar innan 12 mánaða frá veitingu byggingarleyfis, og er bæjarstjórn þá heimilt að undangenginni viðvörun að afturkalla byggingarleyfið og/eða lóðarúthlutun og skal kveðið svo á um í úthlutunar- eða byggingarskilmálum.

Sveitarstjórn skal með 30 daga fyrirvara senda lóðarhafa með sannanlegum hætti viðvörun um hina fyrirhuguðu afturköllun áður en byggingarleyfi og/eða lóðarúthlutun er afturkölluð.

2. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti ofangreinda breytingu á fundi sínum 21. desember 2023 og auglýsir þá ákvörðun með tilvísun til laga nr. 153/2006 um gatnagerðargjald, og reglugerðar nr. 543/1996, um gatnagerðargjald.

Breytingin öðlast gildi við birtingu.

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 21. desember 2023.

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2023

Tengd mál