Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Hornafjörður
Málaflokkur
Sorphreinsun, Sveitarfélagið Hornafjörður
Undirritunardagur
16. desember 2025
Útgáfudagur
2. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1572/2025
16. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
1. gr. Almennt.
Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 236/2018.
2. gr. Um móttökugjöld íbúa.
Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir rúmmáli (kr./m³) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Rúmmál úrgangs skal metið af starfsfólki söfnunarstöðvarinnar, og ef þörf krefur með notkun málbands. Starfsfólk ber jafnframt ábyrgð á flokkun úrgangs í samræmi við gjaldskrá, með hliðsjón af lýsingu úrgangshafa og sjónmati á afhentu efni. Stórir farmar, sem almennt fara yfir 500 kg að þyngd og koma með vögnum, hestakerrum eða stærri ökutækjum, skulu vigtast á hafnarvoginni. Lífrænn úrgangur verður áfram vigtaður í móttökustöðinni.
Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, heyrúlluplast, frauðplast, glerumbúðir, málmumbúðir, hjólbarða, raftæki, ýmis spilliefni og ónýt ökutæki.
Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.
3. gr. Um móttökugjöld fyrirtækja.
Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Úrgangur skal vigtaður á brettavog í söfnunarstöðinni ef farmur er minni en 50 kg á hverja úrgangstegund eða á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar ef farmur er yfir 50 kg á hverja úrgangstegund. Nauðsynlegt er að sýna vigtarnótu eða staðfestingu á vigtun til að komast inn á söfnunarstöðina á Höfn með slíka farma.
Í ákveðnum tilfellum skal fyrirtæki tómvigta ökutæki á hafnarvog eftir farmlosun á söfnunarstöð. Sé þeirri skyldu ekki sinnt skal innheimta lágmarksgjald sem jafngildir 200 kg af blönduðum/grófum úrgangi eða 15.200 kr.
Heimilt er að hafna frekari förmum frá slíkum ökutækjum þar til tómvigtun hefur farið fram.
Fyrir vigtun eru greidd vogargjöld samkvæmt gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.
Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.
4. gr. Móttökugjöld á söfnunarstöð.
Gjöld vegna móttöku úrgangs á söfnunarstöð* eru eftirfarandi:
|
Flokkur 1. |
Kr./kg | Kr./m³ |
|
Blandaður/grófur úrgangur: |
87 | 10.911 |
|
Plast án úrvinnslugjalds: |
87 | 10.911 |
|
Litað timbur: |
66 | 13.156 |
|
Flokkur 2. |
||
|
Hreint timbur: |
37 | 7.337 |
| Gifs og gifsplötur. |
37 | 14.674 |
|
Matarafgangar í moltugerð: |
37 | 14.674 |
|
Hreint steinefni frá framkvæmdum: |
37 | 14.674 |
|
Flokkur 3. |
||
| Plastumbúðir | 0 | 0 |
| Pappír, sléttur pappi, dagblöð og tímarit | 0 | 0 |
| Bylgjupappi | 0 | 0 |
| Frauðplast | 0 | 0 |
| Heyrúlluplast og stórsekkir - hreint | 0 | 0 |
| Málmumbúðir/brotajárn | 0 | 0 |
| Glerumbúðir, s.s. flöskur og krukkur | 0 | 0 |
| Garðaúrgangur án aðskotahluta | 0 | 0 |
| Endurnýtanlegir hlutir í nytjagám | 0 | 0 |
| Hjólbarðar | 0 | 0 |
| Raftæki | 0 | 0 |
| Rafhlöður og rafgeymar** | 0 | 0 |
| Málning og spilliefni** | 0 | 0 |
| Gjöld fyrir óflokkaðan úrgang | ||
| Blandað, pappír og plast (endurvinnsluefni) | 37 | 4.625 |
| Óflokkaða farma eða endurvinnanlega farma sem innihalda óhreint efni, að undanskildum blönduðum pappír og plasti. | 13.093 kr./klst. | |
* Ekki er tekið við kjöt- og sláturúrgangi, seyru og fitu, sóttmenguðum úrgangi, brotajárni sem inniheldur spilliefni eða veiðarfærum á söfnunarstöð.
** Fyrir rafhlöður eða rafgeyma og spilliefni án úrvinnslugjalds er heimilt að innheimta gjöld fyrir útlögðum förgunarkostnaði.
5. gr. Móttökugjöld á urðunarstað.
Fyrir farma á urðunarstað skulu eftirfarandi gjöld greidd fyrir hvert kíló samkvæmt vigt á hafnarvog sveitarfélagsins.
| Úrgangstegund | Kr./kg |
|
Blandaður/grófur úrgangur: |
66 |
| Kjöt- og sláturúrgangur | 45 |
| Seyra og fita | 45 |
| Matarleifar í moltugerð | 29 |
Aðeins fyrirtækjum sem hafa heimild sveitarfélagsins og eru með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint á urðunarstaðinn í Lóni. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila urðunarstaðar.
Innihaldi farmar losunaraðila annan úrgang en þann sem heimilt er að losa á urðunarstaðinn, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.
6. gr. Aðfararheimild.
Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
7. gr. Lagaheimild og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast þegar gildi.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 667/2025.
Samþykkt í bæjarstjórn, 16. desember 2025.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 2. janúar 2026