Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Mosfellsbær
Undirritunardagur
11. maí 2026
Útgáfudagur
12. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 475/2026
11. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna rammahluta aðalskipulags fyrir Blikastaðaland.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 11. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. desember 2025.
Í rammahluta aðalskipulags felast áform um 3.600 nýjar íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Skilgreint er nýtt 7,5 ha svæði fyrir verslun og þjónustu 150-VÞ og 3 ha opið svæði til sérstakra nota 151-Oí en íbúðarbyggð 124-Íb minnkar sem því nemur. Þá eru gerðar breytingar á stígakerfi auk þess sem Borgarlína er innfærð sem tengibraut.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 11. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 12. maí 2026