Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fiskeldi
Undirritunardagur
8. mars 2023
Útgáfudagur
16. mars 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 262/2023
8. mars 2023
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 10. tl., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 frá 19. desember 2022 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/2504 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 7/2023.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Margrét Björk Sigurðardóttir.
B deild - Útgáfud.: 16. mars 2023