Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Flugmál
Undirritunardagur
30. janúar 2018
Útgáfudagur
1. febrúar 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 117/2018
30. janúar 2018
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd, með síðari breytingum.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 53. gr. a, svohljóðandi ásamt fyrirsögn:
Önnur ákvæði.
Singapúr, Changi flugvöllur, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að geri flugverndarkröfur sem jafngilda sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, að því er varðar flugvernd loftfara,varðandi farþega og handfarangur sem og lestarfarangur.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerðin er sett með heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast gildi 6. febrúar 2018.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. janúar 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2018