Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. október 2026

Útgáfudagur

23. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1121/2026

9. október 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 244/2014.

1. gr.

Heiti reglnanna skal vera: Reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur, skólagjöld o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

2. gr.

Á eftir 1. mgr. 1. gr. reglnanna kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:

Reglur þessar taka einnig til innheimtu og ráðstöfunar skólagjalda af nemendum með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi, á grundvelli h-liðar 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla.

3. gr.

Á eftir 10. gr. a. reglnanna bætist við ný grein, 10. gr. b., sem ásamt fyrirsögn orðast
svo:

Skólagjöld nemenda utan EES.

Heimilt er að innheimta skólagjöld af nemendum með erlent ríkisfang sem falla undir g- og h-lið 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Gjaldið skal standa straum af áætluðum kostnaði við kennslu, rannsóknir, aðstöðu og aðra þjónustu við þá nemendur, enda er þeim ekki mætt með framlögum úr ríkissjóði.

Háskólaráð getur heimilað að gjaldið sé innheimt í áföngum eða hlutfallslega miðað við
fjölda eininga sem nemandi er skráður í.

Fjárhæð skólagjalda skal ekki vera hærri en sem nemur áætluðum kostnaði við námið, þar með töldum umsýslu- og afgreiðslugjöldum og auknum kostnaði vegna þjónustu við nemendur.

Kostnaður fer eftir því hvaða nám nemandinn velur.

4. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði, eru settar í samræmi við 71. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, með heimild í h-lið 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. október 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 23. október 2026

Tengd mál