Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

12. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 676/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um (3.) breytingu á reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.

1. gr.

Í stað orðsins „Umhverfis- og auðlindaráðherra“ í 4. gr. kemur: Ráðherra.

2. gr.

Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 4. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.

3. gr.

Á eftir 13. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 13. gr. a, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:

Tilkynningarskylda færanlegrar starfsemi.

Rekstraraðili færanlegrar starfsemi, þ.m.t. jarðboranir, færanlegar malbikunarstöðvar og steypustöðvar, sem er starfsleyfis- eða skráningarskyld samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, skal tilkynna eftirlitsaðila um fyrirhugað verk að jafnaði eigi síðar en fjórum vikum fyrir áætlað upphaf verks.

Í tilkynningu skal koma fram:

  1. Nafn, kennitala, heimilisfang og tölvupóstfang rekstraraðila.
  2. Nafn, símanúmer og tölvupóstfang tengiliðs verks.
  3. Heiti og/eða auðkenni tækis sem notað er við framkvæmdina.
  4. Tegund verks.
  5. Staðsetning verks (GPS hnit og lýsing) og eftir atvikum yfirlitsmynd.
  6. Upphaf verks og áætluð verklok.
  7. Áætlað magn olíuefna sem notuð verða við verkið.
  8. Listi yfir önnur efni sem notuð verða við verkið.
  9. Áhættumat og viðbragðsáætlun vegna mengunaróhappa.
  10. Áætlun um meðhöndlun úrgangs þar sem fram koma meðal annars upplýsingar um tegund úrgangs, mögulega endurnotkun innan framkvæmdasvæðis eða annars staðar og móttökuaðila þess úrgangs sem ekki er mögulegt að endurnota.

Umhverfis- og orkustofnun skal staðfesta móttöku tilkynningar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 5. gr. og 14. gr. a laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. júní 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026

Tengd mál