Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
22. janúar 2026
Útgáfudagur
6. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 117/2026
22. janúar 2026
REGLUR
um breytingu á reglum um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl. og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 244/2014.
1. gr.
Viðauki II við reglurnar orðast svo:
Viðauki II.
Sundurliðun á þjónustugjaldi fyrir Háskólabrú.
| Kostnaður á nemanda | Upphæð | Skýring |
| Heildarkostnaður samtals | 1.298.190 kr. | |
| Þar af: | ||
| Kennslukostnaður | 873.491 kr | Laun kennara, verktakar og umsjón |
| Húsnæði og búnaður | 129.672 kr. | Leiga, afskriftir og tækjabúnaður |
| Námsráðgjöf og stoðþjónusta | 112.686 kr. | Sérhæfð ráðgjöf fyrir aðfaranám |
| Umsýsla og önnur þjónusta | 182.342 kr. | Skrifstofa, markaðsmál og tæknikerfi |
| Framlag ríkissjóðs á nemanda | (925.000 kr.) | Sérstakt framlag vegna aðfaranáms |
| Gjald nemanda | 373.190 kr. | |
| Gjaldskrá eftir umfangi náms: | ||
| Umfang námsleiðar | Einingafjöldi | Gjald fyrir námið* |
| Lágmarksumfang | 73 einingar | 290.000 kr. |
| Hámarksumfang | 97 einingar | 384.000 kr. |
* Gjald fyrir aðrar útfærslur eða stök námskeið reiknast hlutfallslega út frá þessum viðmiðum.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við 71. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í c-lið 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 4. mgr. 19. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 22. janúar 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 6. febrúar 2026