Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Stykkishólmur

Málaflokkur

Sorphreinsun, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

9. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1642/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir úrgangshirðu og úrgangsfrágang í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

1. gr.

Árlegt þjónustugjald vegna sorphirðu og sorpeyðingar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi til að standa undir kostnaði er sem hér segir:

A. Úrgangshirðugjald skal lagt á allar íbúðir og sumarhús sem virt eru í fasteignamati. Einnig skal úrgangshirðugjald lagt á aukaíbúðir í húsum sem virt eru í fasteignamati sem óskiptar eignir.
  Úrgangshirðugjald er kr. 40.560.
  Úrgangshirðugjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við úrgangshirðu, úrgangsfrágang og urðun úrgangs, ásamt kostnaði við rekstur endurvinnslustöðva og grenndarstöðva.
  Innifalin í úrgangshirðugjaldi er móttaka á gjaldskyldum flokkuðum úrgangi til förgunar og endurvinnslu, á endurvinnslustöð á gámasvæði við Snoppu, gegn framvísun 16 skipta klippikorts (app í síma), sem fæst árlega. Hvert klipp gildir fyrir 0,25 rúmmetra sem samsvarar 240 lítra heimilistunnu.
  Aukaklippikort kostar 11.100 kr. (16 skipti) og 5.500 kr. (8 skipti).
B. Sérstök söfnun við heimili er flokkun með 4 tunnum sem grunnregla, en möguleiki er á tvískiptri tunnu. Gjald fyrir tunnu á ári er eftirfarandi:

 

Tunna, 240 lítra, almennur úrgangur

23.088 kr.

 

Tunna, 240 lítra, pappi og pappír

 5.824 kr.

 

Tunna, 140 lítra, matarúrgangur

 5.824 kr.

 

Tunna, 240 lítra, plastúrgangur

 5.824 kr.

 

Tvískipt tunna, 240 lítra, plast og pappír

19.968 kr.

 

Verð fjórar tunnur samtals

81.120 kr.

 

Verð þrjár tunnur, ein tvískipt

89.440 kr.

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu samkvæmt 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum og eru gjalddagar hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

3. gr.

Önnur gjöld (glatist tunna):

  Tunnugjald, ný 140 lítra tunna 12.900 kr. hvert ílát
  Tunnugjald, ný 240 lítra tunna 16.300 kr. hvert ílát

4. gr.

Gjald fyrir móttöku úrgangs sem komið er með til söfnunarstöðvar:

Meðhöndlun kr. með vsk
Tímavinna við flokkun og frágang 5.211
Vigtunargjald 2.573
Vigtunargjald utan opnunartíma 13.999
Óflokkað kr./kg með vsk
Grófur óflokkaður úrgangur 59,46
Úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega fyrir förgun
og aðra meðhöndlun. Sem dæmi: teppi, dýnur, kaðlar, net,
húsgögn, jarðvegur, málmar, timbur, steinefni og gler.
 
Blandaður úrgangur/almennt sorp 45,53
Að mestu úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil
og þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar fyrir förgun.
 
Flokkað kr./kg með vsk
Timbur 34,15
Hvítmálað, plasthúðað og blandað  
Timbur 16,44
Hreint, ekki litað eða fúavarið  
Kjöt og sláturúrgangur 45,53
Lífrænn úrgangur til jarðgerðar 25,30
Heimilistæki o.fl. 0
Gras án aðskotahluta 6,49
Húsbúnaður, fatnaður o.fl. til endurnotkunar 0
Bylgjupappi sem er tækur til endurvinnslu 0
Dagblöð, tímarit, skrifstofupappír og annar pappír tækur til endurvinnslu 0
Plast til endurvinnslu 0
Gjöld vegna spilliefna og spilliefnamengaðs úrgangs o.þ.h. sem
úrvinnslugjald er ekki lagt á:
kr./kg með vsk
Olíusíur 178,34
Olíuúrgangur s.s. ódælanlegur úrgangur og olíumengaður jarðvegur,
tvistur o.fl.
304,17
Lífræn spilliefni með halógenum og/eða brennisteini s.s. ýmis  
PCB úrgangur 1.397,20
Lífræn spilliefni án halógens og brennisteins  
Lífræn efni: Etylenglýkól, frostlögur, prýlenglýkól, ediksýra,
lífrænar sýrur, asfalt, amín, lífræn sölt, polýól og tektyl
386,11
Málning vatnsblönduð og önnur ótalin eftirlitsskyld spilliefni 107,32
Kvikasilfursmengaður úrgangur 995,26
Oxandi og gasmyndandi efni 1.509,20
Ólífræn spilliefni s.s. brennisteinssýra, saltsýra, fosfórsýra, flúorsýra,
krómsýra, málmhreinsisýrur, lútur, basísk affitunarböð með cyaníði,
galvanhúðunarböð, herðisölt, natríum hydroxíð, fljótandi hýpólórít,
málmhydroxíðleðja, ólífræn sölt 
667,20
Ýmis spilliefni s.s. lyf, sprautunálar, flugeldar, polyúretan úðabrúsar  
Úrgangur sem þarfnast efnagreiningar 667,20
Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar > 100 l 10.162,95
Umbúðir spilliefnamerktar/spilliefnamengaðar < 100 l 2.541,95
Gagnaeyðing 190,65

5. gr.

Sveitarfélaginu er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðri eða víðtækari þjónustu en gjaldskrá tekur til.

6. gr.

Jarðvegslosun er á haugum við Ögursveg.

Fyrir móttöku á múr og óvirkum úrgangi, sem er umfram eðlilega heimilislosun á flokkunarstöðina Snoppu greiðast 7,03 kr./kg vegna kostnaðar við endurvinnslu og geymslu.

7. gr.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengins dóms, sbr. lokamálslið 4. mgr. 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokaml. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

8. gr.

Gjaldskrá þessi var samin og samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms 11. desember 2025, að fenginni umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og með stoð í 5. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Stykkishólmsbæ, nr. 50/2012, sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 og 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir úrgangshirðu og úrgangsfrágang í Sveitarfélaginu Stykkishólmi nr. 1779/2024.

Stykkishólmi, 16. desember 2025.

Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 9. janúar 2026

Tengd mál