Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 702/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 112/2022 um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Í stað „BA-prófi“ kemur: BA-gráðu.
- Í stað „BS-prófi“ kemur: BS-gráðu.
- Í stað orðanna „fyrsta háskólaprófi“ koma orðin: fyrstu háskólagráðu.
2. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 4. málsl. 3. mgr. 10. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
3. gr.
Í stað orðanna „Í meistaraprófi má ákveða“ í 2. málsl. 1. mgr. 13. gr. reglnanna koma orðin: Ákveða má.
4. gr.
Í stað orðsins „Meistaraprófsritgerð“ í 14. gr. reglnanna kemur orðið: Meistararitgerð.
5. gr.
Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 16. gr. reglnanna kemur orðið: Meistaragráða.
6. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025