Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
21. júlí 2026
Útgáfudagur
5. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 871/2026
21. júlí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ9.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti, 21. júlí 2026, óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. desember 2025.
Breytingin tekur til skipulagsákvæða fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ9 á Selfossi þar sem bætt verður við heimild til að koma fyrir til bráðabirgða færanlegum kennslustofum á svæðinu.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. júlí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. ágúst 2026