Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing ytra

Málaflokkur

Sorphreinsun, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

13. desember 2018

Útgáfudagur

16. janúar 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1348/2018

13. desember 2018

GJALDSKRÁ

Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. fyrir sorphirðu og sorpeyðingu.

1. gr.

Sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. setja eftirfarandi gjaldskrá að fenginni tillögu stjórnar byggðasamlagsins fyrir sorphirðu og meðhöndlun úrgangs og annast innheimtu gjaldanna innan síns sveitarfélags.

2. gr.

Íbúðarhúsum, frístundahúsum, fyrirtækjum, lögaðilum og öðrum sem hafa með höndum starfsemi sem krefst sorphreinsunar skipar viðkomandi sveitarfélag í flokk eftir áætluðu magni úrgangs. Gjaldið skal vera eftirfarandi:

Íbúðarhús Frístundahús Lögbýli*** Atvinnuhúsnæði
Grunngjald kr.* 21.147 21.147 9.069 21.147
Ílátagjald kr.** 23.180
Samtals kr. 44.327 21.147 9.069 21.147
Gjald fyrir heimsendan gám kr. 22.500.

* Sorpeyðingargjald tekur til reksturs sorpkerfisins, s.s. reksturs gámastöðvar og förgunar- og endurvinnsluleiða. Greiðsla grunngjalds veitir viðkomandi aðilum aðgengi að sorpkerfinu og afsetningu á heimilisúrgangi.

** Ílátagjald er einungis lagt á heimili og innifelur það gjald leigu og losun á ílátum.

*** Grunngjald er lagt á lögbýli sem hafa umfang umfram hefðbundið heimili, þ.e. séu fasteignir umfram íbúð og bílskúr á lögbýli, er lagt á það grunngjald.

3. gr.

Gjaldskrá þessi er samin af stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. og samþykkt af sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins. Gjaldskráin er sett í samræmi við 10. gr. samþykkta byggðasamlagsins og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1135/2017.

Hellu, 13. desember 2018.

F.h. Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.,

Ágúst Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 16. janúar 2019

Tengd mál