Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Útlendingar

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

26. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 725/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

1. gr.

II. kafli reglugerðarinnar, sem fær fyrirsögnina Skammtímadvalarleyfi, orðast svo:

  1. (3. gr.)

Veiting skammtímadvalarleyfis.

Veita má útlendingi skammtímadvalarleyfi að fenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum laga ef jafnframt er fullnægt skilyrðum samkvæmt reglugerð þessari.

Skammtímadvalarleyfi felur í sér heimild til dvalar hér á landi í allt að 180 daga. Dvöl útlendings þegar sótt er um slíkt dvalarleyfi skal vera í samræmi við 49. gr. útlendingalaga nema annað sé tekið fram.

Samfelld dvöl útlendings hér á landi skal ekki vara lengur en 180 daga í senn og skal gildistími dvalarleyfis taka mið af því. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu skal jafngilda dvöl hér á landi.

Útlendingi er ekki heimil dvöl hér á landi umfram gildistíma dvalarleyfis. Þrátt fyrir það er útlendingi, sem er undanþeginn áritunarskyldu heimil dvöl innan Schengen-svæðisins í allt að 90 daga að loknum gildistíma leyfisins.

Sækja skal um skammtímadvalarleyfi á sérstakri umsókn sem Útlendingastofnun útbýr.

  1. (4. gr.)

Umsækjandi um skammtímadvalarleyfi.

Útlendingur sem sækir um skammtímadvalarleyfi skal hafa náð 18 ára aldri en útlendingur yngri en 18 ára getur fengið slíkt dvalarleyfi útgefið í tengslum við umsókn foreldris eða forsjármanns um skammtímadvalarleyfi.

  1. (5. gr.)

Grundvöllur skammtímadvalarleyfis.

Heimilt er að gefa út skammtímadvalarleyfi í eftirfarandi tilvikum:

  1. Til nánustu fjölskyldumeðlima en til þeirra teljast hjúskaparmaki, foreldri, barn og systkini sem hyggjast koma í lengri heimsókn hingað til lands.
  2. Til listamanna, vísindamanna eða íþróttamanna, enda kalli dvöl þeirra ekki á útgáfu atvinnuleyfis.
  3. (6. gr.)

Skilyrði skammtímadvalarleyfis.

Umsækjandi um skammtímadvalarleyfi skal ásamt umsókn leggja fram öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun gerir kröfu um og teljast nauðsynleg við vinnslu umsóknar.

Umsækjandi skal m.a. sýna fram á:

  1. Boðsbréf frá gestgjafa eða bréf þar sem tilgangi dvalar hér á landi er lýst.
  2. Að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann dvelur hér á landi.
  3. Að hann sé sjúkra- og slysatryggður þann tíma sem hann dvelur hér á landi.
  4. Að hann eigi farmiða fyrir heimferð eða hafi fjárráð til að greiða heimför þegar dvöl hér á landi lýkur.
  5. Gögn sem staðfesta tilgang dvalar hér á landi.

Þrátt fyrir c-lið 1. mgr. 55. gr. laganna skal ekki gerð krafa um að umsækjandi gangist undir læknisskoðun eftir komu til landsins.

Með umsókn um skammtímadvalarleyfi skal umsækjandi leggja fram yfirlýsingu sína um að hann hafi hreinan sakaferil í samræmi við ákvæði útlendingalaga. Útlendingastofnun er heimilt að óska eftir gögnum um sakaferil umsækjanda vakni grunur um að umsækjandi hafi ekki greint rétt frá við umsókn.

  1. (7. gr.)

Synjunarástæður og heimild til afturköllunar.

Umsókn um skammtímadvalarleyfi skal synjað:

Ef ástæða dvalar umsækjanda hér á landi er þess eðlis að honum beri að sækja um dvalar- og/eða atvinnuleyfi á öðrum grundvelli.

Ef fyrir liggja ástæður sem varða almannaöryggi eða ef stefna stjórnvalda í utanríkis- eða innflytjendamálum mælir gegn því.

Ef líklegt er talið að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið þegar dvalarleyfi rennur út.

Ef umsókn uppfyllir með öðrum hætti ekki skilyrði fyrir skammtímadvalarleyfi.

Ef umsækjandi gefur rangar upplýsingar um sakaferil.

Útlendingastofnun er heimilt að afturkalla skammtímadvalarleyfi ef útlendingur brýtur gegn skilyrðum þess eða ef dvöl reynist ekki í samræmi við grundvöll dvalar hans samkvæmt umsóknargögnum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 6. mgr. 21. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 26. júní 2026

Tengd mál