Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Húnaþing vestra

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 769/2026

22. júní 2026

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Húnaþings vestra, nr. 15/2024.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. samþykktarinnar:

  1. Hvar sem orðin „skipulags- og umhverfisráð“ koma fyrir í 4. tölul. B-liðar, kemur: skipulagsráð.
  2. 7. tölul. B-liðar breytist og orðast svo: Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Veituráð fer með umhverfis- og hreinlætismál í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og lög um loftslagsmál, nr. 70/2012, málefni vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu og gagnaveitu, í samræmi við lög um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004, orkulög, nr. 58/1967, og lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, verkefni náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, og málefni sem tengjast framkvæmdum í sveitarfélaginu. Auk verkefna sem umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari, getur sveitarstjórn falið ráðinu ýmis verkefni með erindisbréfi.
  3. 1. tölul. C-liðar breytist og orðast svo: Almannavarnanefnd Húnavatnssýslna. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt lögum um almannavarnir, nr. 82/2008.

2. gr.

52. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður og veitir þeim lausn frá starfi. Auk sveitarstjóra falla eftirfarandi störf undir skilgreiningu á að vera hluti af æðstu stjórnunarstöðum: Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs, skólastjórar grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla og slökkviliðsstjóri.

3. gr.

53. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:

Um ráðningu annarra starfsmanna er vísað til ákvæða í verklagsreglum sveitarstjórnar um ráðningu starfsmanna sveitarfélagsins.

4. gr.

4. gr. viðauka I við samþykktina breytist og orðast svo:

Skipulags- og byggingarfulltrúi afgreiðir endurnýjun lóðasamninga án staðfestingar sveitarstjórnar. Einnig hefur skipulags- og byggingarfulltrúi heimild til að afgreiða nýja lóðasamninga sem samræmast gildandi skipulagsáætlunum.

5. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 22. júní 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál